Kærleikshlaðið og litríkt mataræði

Það er frelsandi að gerast vegan, því þannig má borða eins mikið af kærleiks­hlöðnum og litríkum mat og maður getur í sig látið án þess að fá samviskubit af nokkru tagi. Það segir Guðrún Sóley Gests­dóttir og kennir fimm auðveld skref að mark­miðinu.

Þegar Guðrún Sóley Gests­dóttir talar um mat og hvernig henni líður eftir að hún fjarlægði dýra­afurðir úr mataræði sínu er auðvelt að hrífast með henni. Hún talar um að græna fæðið hlaði fæðuna hennar jákvætt og af kærleika. „Sumir líta á veganisma sem heftandi en ég upplifi hann þvert á móti frelsandi, því ég þarf að borða mikinn mat til að ná inn hitaeininga­fjöldanum sem ég þarf. Diskarnir mínir eru fullir af lifandi fæði sem vex á trjám og á uppruna sinn í nátt­úrunni, kærleiks­hlaðinn, litríkur fjöl­breyttur matur sem ég get borðað þangað til ég get ekki meir,“ segir hún.

Þá sé það góð tilfinning að vita með vissu að enginn hafi þurft að láta lífið fyrir máltíðina fyrir framan mann. Fyrir jólin kom út á vegum Sölku útgáfu bókin Grænkera­krásir Guðrúnar Sóleyjar en í henni er að finna „vegan uppskriftir fyrir mannúðleg matargöt“. Bókin er liður í barátt­unni. „Bókin er kannski mín tegund af aktívisma. Frum­kvæðið að henni kom frá Dögg og Önnu Leu hjá Sölku, sem voru svo snjallar að spotta eftir­spurnina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár