Fína fólkið, barnaníð og samsæri

Jeffrey Epstein fannst lát­inn í fanga­klefa á dög­unum og fjöldi sam­sær­is­kenn­inga er á lofti um dauða hans. Sak­sókn­ar­inn, sem lét hann sleppa með 13 mán­aða dóm árið 2008 fyrir að níð­ast á barn­ungum stúlkum í áraraðir, hefur sagt af sér sem ráð­herra í rík­is­stjórn Trump. Í kjöl­far and­láts­ins hefur FBI gert hús­leit á heim­ili hans og ekki er úti­lokað að lagt hafi verið hald á gögn sem gefi til­efni til frek­ari rann­sókna, en hátt settir menn liggja undir grun.

Auð­kýf­ing­ur­inn og barn­a­níð­ing­ur­inn Jeffrey Epstein fannst lát­inn í fanga­klefa á dög­unum og fjöldi sam­sær­is­kenn­inga er á lofti um dauða hans á báðum vængjum banda­rískra stjórn­mála. Óttast margir að hann hafi verið myrtur til að tryggja að valda­miklir vinir hans sleppi jafn vel og þeir gerðu þegar Epstein var dæmdur árið 2008. Sak­sókn­ar­inn, sem lét Epstein sleppa með 13 mán­aða dóm fyrir að níð­ast á barn­ungum stúlkum með skipu­lögðum hætti í áraraðir, hefur sagt af sér sem ráð­herra í rík­is­stjórn Donalds Trump. Mikil leynd ríkir yfir því hvaða valda­miklu menn kunni að hafa níðst á stúlk­unum í einka­sam­kvæmum Epsteins.

Epstein, sem er fæddur 1953, hóf feril sinn sem stærð­fræði­kenn­ari þegar hann var rúm­lega tví­tugur en hafði þó aldrei útskrif­ast úr háskóla. Hann sagði fljót­lega skilið við kennslu­stof­una og ákvað að nýta talna­þekk­ingu sína frekar á verð­bréfa­mörk­uðum.

Skemmst er frá því að segja að Epstein vegn­aði vel á þeim vett­vangi …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár