Sameina Icelandic Ibérica og Iceland Seafood á Spáni

Stjórn Iceland Seafood International hefur ákveðið að hefja sam­ein­ingu á tveimur dótt­ur­fé­lögum sínum á Spáni, Iceland Seafood Spain og Icelandic Ibérica. Sam­an­lögð velta félag­anna tveggja er um 180 millj­ónir evra.

Bjarni Ármannson, forstjóri Iceland Seafood International.
Bjarni Ármann­son, for­stjóri Iceland Seafood International. Mynd: Íris Dögg Einarsdóttir.

Stjórn Iceland Seafood International hefur ákveðið að hefja sameiningu á tveimur dótturfélögum sínum á Spáni, Iceland Seafood Spain og Icelandic Ibérica. Félagið Icelandic Ibérica varð hluti af Iceland Seafood International samsteypunni í september á síðasta ári í kjölfar kaupa ISI á Solo Seafood sem þá var aðaleigandi Icelandic Ibérica. Í tilkynningu frá samsteypunni segir að markmið samrunans sé að styrkja enn frekar markaðsstöðu félagsins í Suður-Evrópu, þar sem fyrirtækin eru leiðandi í léttsöltuðum og söltuðum þorski. Samanlögð velta félaganna tveggja er um 180 milljónir evra eða um 24,5 milljarðar króna.

Magnús B. Jónsson mun stýra sameinaða félaginu

Í kjölfar samruna Iceland Seafood Spain og Icelandic Ibérica verða sameinaða félagið stærsta einstaka einingin innan ISI samsteypunnar að samruna loknum. Félögin eru með starfsemi víðs vegar á Spáni og á Ítalíu en Iceland Seafood Spain var stofnað árið 1988. Icelandic Ibérica var síðan stofnað árið 1996 og er, samkvæmt tilkynningunni, stærsti söluaðili létt saltaðs þorsks frá Íslandi í Suður- Evrópu en það er stærsta markaðssvæði íslenskra þorskafurða.

Nýja sameinaða félagið verður stýrt af Magnúsi B. Jónssyni, núverandi forstjóra Iceland Seafood Spain en Hjörleifur Ásgeirsson, forstjóri Icelandic Ibérica, lætur af störfum eftir 23 ár í starfi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fiskveiðar

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár