Tveir sérvitringar sem fundu hvor annan

Eftir tveggja áratuga hjónaband hafa hjónin Una Margrét Jóns­dóttir og Hólmsteinn Eiður Guðrúnarson það að leiðar­ljósi að vera til staðar. Með vináttuna að vopni hafa þau tekist á við erfið­leika og áskoranir, hvort sem það eru almennir hjónabands­erfiðleikar eða áráttu- og þráhyggju­röskunin sem Una er með en þau lifa bæði.

Una Margrét og Eiður, eins og þau eru kölluð af öðrum, kalla sig sjálf sérvitringa, mikla sérvitringa ef út í það er farið. Þau segjast heppin að hafa fundið hvort annað, heppin að hafa fundið annan sérvitring til að deila lífi sínu, gleði og áskorunum með. 

Áskoranir þeirra hjóna eru sumpart ósköp hversdagslegar og jafnvel kunnuglegar, erfið­leikar sem flest hjón mæta, en svo er áskorun sem hefur mótað þau og þeirra hjónaband mikið og kennt þeim ýmislegt um þau sjálf, lífið og samlífið. Það er áráttu-og þráhyggju­röskun Unu Margrétar.

Frá því að Una var ung stelpa hefur hún glímt við áráttu og þráhyggju sem hún komst að seinna að væri hluti af röskun. Þetta byrjaði allt þegar hún var barn en þá fór hún að fá ýmiss konar þráhyggju til að mynda fyrir því að söngla alltaf sama bútinn úr lagi. „Þegar mamma og pabbi spurðu mig af …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár