Notkun ópíóíða á Íslandi mun meiri en í Skandinavíu

Mikill munur er á tauga- og geð­lyfja­notkun á Íslandi ann­ars vegar og Danmörku, Noregi og Svíþjóð hins vegar. Munurinn er mestur á ópíóíða­notkun, en Íslend­ingar neyta um 150 pró­sent meira af þeim en Svíþjóð og Danmörk.

Alma Möller landlæknir
Alma Möller land­læknir Mynd: Bára Huld Beck

Íslend­ingar neyta mun meira af tauga- og geð­lyfjum en Danir, Norðmenn og Svíar. Í flokki ópíóíða er neyslan hér­lendis meira en tvö­falt meiri en í Skand­in­avíu, en Íslend­ingar neyta einnig meira af róandi lyfjum, svefn­lyfjum, þung­lynd­is­lyfjum, örvandi lyfjum og floga­veikis­lyfjum. Hlutfall not­enda hefur þó minnkað nokkuð á síð­ustu árunum sem neyslan hefur verið mæld.

Þetta kemur fram í pistli frá Ölmu Möller land­lækni sem birt­ist í Lækna­blað­inu í gær. Samkvæmt pistl­inum er notkun lyfja í flestum lyfja­flokkum áþekk á meðal Norð­ur­landa­þjóð­anna ef frá er talin notkun tauga- og geð­lyfja, sem lengi hefur verið hæst á Íslandi.

Að sögn land­læknis skýrist mun­ur­inn að ein­hverju leyti af því að fleiri ein­stak­lingar fái ávísað tauga- og geð­lyfjum hér­lendis, en 36 pró­sent Íslend­inga fengu ávísað slík lyf árið 2019, á meðan sam­svar­andi hlut­fall var á milli 27 og 29 pró­senta á hinum Norð­ur­lönd­unum. Hins vegar hefur hlut­fallið hér á landi minnkað nokkuð frá árinu 2017, þegar um 38 pró­sent neyttu slíkra lyfja.

Líkt og sést á mynd­inni hér að ofan, sem fengin er af gögnum úr Lækna­blað­inu, sést að Ísland hefur þó enn fleiri lyfja­not­endur í öllum flokkum tauga- og geð­lyfja, ef tekið er til­lit til mann­fjölda hvers lands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

lyfjamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár