Stefnir að endalokum QE í desember

Seðla­banka­stjóri Evrópska seðla­bank­ans, Mario Draghi, lýsti í dag yfir fyr­ir­hug­uðum enda­lokum magn­bund­innar íhlut­unar í des­em­ber.

Mario Draghi, seðlabankastjóri Evrópska seðlabankans.
Mario Draghi, seðla­banka­stjóri Evrópska seðla­bank­ans. Mynd: EPA

Seðla­banki Evrópu hefur kosið um enda­lok skulda­bréfa­kaupa í des­em­ber á þessu ári. Þetta kom fram á blaða­manna­fundi sem seðla­banka­stjór­inn Mario Draghi hélt í dag, en Guardian greinir frá.

Á síð­ustu þremur árum hefur seðla­bank­inn staðið í umfangs­miklum skulda­bréfa­kaupum til þess að ýta upp nafn­vöxtum á Evru­svæð­inu og bjarga því frá svo­kall­aðri lausa­fjár­gildru (e. liquidity trap). Þessi aðgerð er nefnd magn­bundin íhlutun (e. quantitative easing) en vegna hennar hefur bank­inn keypt skulda­bréf að and­virði 2,6 trilljón evra, þrátt fyrir að upp­haf­lega hafi staðið til að kaupa fyrir “ein­ungis” eina trilljón. [adspot]

Beðið hefur verið eftir enda­lokum aðgerð­ar­innar í nokkurn tíma þar sem ótt­ast var vaxta­hækk­unar og veik­ingar evr­unnar. Draghi lýsti því hins vegar yfir að vextir á evru­svæð­inu myndu hald­ast lágir næstu tvö árin.

Gríð­ar­leg geng­is­veik­ing fylgdi í kjöl­far ákvörð­un­ar­innar, en verð­gildi evr­unnar lækk­aði um nær eitt pró­sent gagn­vart Banda­ríkja­dal í kjöl­far blaða­manna­fund­ar­ins. Til við­bótar við áður­nefnda ákvörðun má búast við að geng­is­veik­ingin sé einnig vegna upp­færðrar hag­vaxtar-og verð­bólgu­spár seðla­bank­ans á fund­inum. Búist er við hærri verð­bólgu og lægri hag­vexti en áður var spáð, en sam­kvæmt Draghi er það vegna rísandi olíu­verðs og yfir­vof­andi tolla­stríðum milli Banda­ríkj­anna og ann­ara landa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

evran

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár