Ekki færri ungmenni í foreldrahúsum frá upphafi mælinga

Frá því að Hagstofa Íslands byrj­aði að mæla hve margir á aldr­inum 18-24 ára búa með for­eldrum sínum hefur hlut­fallið aldrei verið lægra en það var árið 2021. Tölu­verður munur er á milli ungra karla og kvenna í þessum efnum.

Mun færri ungar konur búa með foreldrum sínum en ungir karlar.
Mun færri ungar konur búa með for­eldrum sínum en ungir karlar. Mynd: Mynd: Pexels

Rúmur helm­ingur, eða 55,5 pró­sent ungs fólks á aldr­inum 18-24 ára, bjó í for­eldra­húsum á síð­asta ári, sam­kvæmt tölum úr lífs­kjara­könnun Hagstofu Íslands. Frá því að Hag­stofan hóf að mæla búsetu ungs fólks í for­eldra­húsum árið 2004 hefur þetta hlut­fall aldrei verið lægra, en hæst var það árið 2016, er 62,2 pró­sent allra á þessum aldri bjuggu með for­eldrum sínum.

Tals­verður munur er á milli ungra karla og kvenna hvað þetta varðar, en árið 2021 bjuggu 63,6 pró­sent karla á þessum aldri með for­eldrum sínum, en 46,3 pró­sent kvenna. Hlutfall karla sem búa hjá for­eldrum sínum hækk­aði frá fyrra ári á meðan að hlut­fall kvenna sem búa í for­eldra­húsum lækk­aði.

Samkvæmt því sem fram kemur í umfjöllun á vef Hag­stof­unnar virð­ist þessi kynja­munur þó jafn­ast út eftir því sem fólk eld­ist, en í hópi þeirra sem voru 25-29 ára árið 2021 bjuggu 23,6 pró­sent karla með for­eldrum sínum en 21,1 pró­sent kvenna. Hlutfall kvenna sem búa í for­eldra­húsum á þessum aldri hefur auk­ist nokkuð á und­an­förnum árum, en á fyrstu árum mæl­inga Hag­stof­unnar voru oft innan við 10 pró­sent kvenna á aldr­inum 25-29 í for­eldra­húsum.

Ungt fólk á höf­uð­borg­ar­svæð­inu er lík­legra til að búa í for­eldra­húsum en ungt fólk í lands­byggð­unum. Árið 2021 bjuggu 51,2 pró­sent 18-29 ára gam­alla karla á höf­uð­borg­ar­svæð­inu með for­eldrum sínum en en 44,7 karla á sama aldri utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Þá bjuggu 45,4 pró­sent 18-29 ára kvenna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu með for­eldrum sínum, en ein­ungis 24,9 pró­sent kvenna utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins.

[adspot]

Samkvæmt tölum Hag­stof­unnar hafa orðið nokkuð miklar breyt­ingar á högum ungra kvenna á aldr­inum 18-29 ár utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins á skömmum tíma, en árið 2019 bjuggu 42,5 pró­sent þeirra með for­eldrum sínum. Hlut­fallið var orðið 24,9 pró­sent árið 2021, sem áður segir.

Fæstir búa með foreldrum á Norðurlöndunum

Í sam­an­burði við ríki Evr­ópu­sam­bands­ins búa til­tölu­lega fá ung­menni í for­eldra­húsum á Íslandi. Heilt yfir bjuggu um 80 pró­sent þeirra sem voru á aldr­inum 18-24 ára í for­eldra­húsum árið 2021, á meðan að hlut­fallið var 55,5 pró­sent á Íslandi. Hlutfall ung­menna í for­eldra­húsum var lægst í Danmörku, þar sem rúm 34 pró­sent bjuggu með for­eldrum sínum á þessum aldri árið 2021, en hæst í Króatíu, þar sem tæp 96 pró­sent fólks á þessum aldri bjó með for­eldrum sínum.

Sem áður segir bjuggu 22,5 pró­sent þeirra sem voru á aldr­inum 25-29 ára með for­eldrum sínum hér­lendis árið 2021. Í ríkjum ESB var þetta hlut­fall 42,1 pró­sent að með­al­tali, lægst á Norð­ur­lönd­unum, ein­ungis 5 pró­sent fólks á þessum aldri bjó með for­eldrum sínum í Danmörku, tæp 7 pró­sent fólks á þessum aldri í Finn­landi og 7,5 pró­sent fólks á þessum aldri í Svíþjóð. Hlut­fallið var hins vegar hæst í Króatíu, þar sem 77 pró­sent bjuggu með for­eldrum sínum og þar á eftir komu Ítalía og Grikk­land.

Fólk í foreldrahúsum líklegra til að vera í vinnu eða námi

Í sam­an­tekt Hag­stof­unnar eru einnig tölur um hlut­fall fólks á aldr­inum 16-24 ára sem ekki er í námi, vinnu eða starfs­þjálfun. Árið 2021 átti það við um 6,3 pró­sent Íslend­inga á þessum aldri, og lækk­aði hlut­fallið úr 7,2 pró­sentum árið 2020.

Fólk sem bjó í for­eldra­húsum var sam­kvæmt tölum Hag­stof­unnar meira en tvö­falt lík­legra til þess að vera í námi, vinnu eða starfs­þjálfun en þau sem ekki búa með for­eldrum sínum á þessum aldri, en árið 2021 voru 12,8 pró­sent fólks á aldr­inum 16-24 ára sem ekki bjuggu í for­eldra­húsum ekki í námi, vinnu eða starfs­þjálfun sam­an­borið við 5,0 þeirra sem bjuggu með for­eldrum.

Sjá má hvernig Ísland stendur í sam­an­burði við ríki Evrópu í þessum efnum hér að neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár