Húsleitir framkvæmdar á heimilum Hlínar og Malínar - tölvur og símar gerð upptæk

Lögregla leit­aði á heim­ilum Hlínar Ein­ars­dóttur og Malínar Brand í kjöl­far þess að þær voru hand­teknar fyrir að reyna að kúga fé út úr Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni for­sæt­is­ráð­herra. Í hús­leit­unum var sönn­un­ar­gagna leitað og símar og tölvur í eigu þeirra gerð upp­tæk. Þetta kemur fram í Frétta­blað­inu í dag.

Syst­urnar voru hand­teknar sunnan við Valla­hverfi í Hafn­ar­firði á föstu­dag þegar þær ætl­uðu að vitja þess fjár sem kraf­ist hafði verið að Sig­mundur Davíð greiddi til að koma í veg fyrir að upp­lýs­ingar sem áttu að geta komið honum illa yrðu gerðar opin­berar. Samkvæmt fram komnum upp­lýs­ingum var sent bréf, stílað á eig­in­konu for­sæt­is­ráð­herra, á heim­ili þeirra á fimmtu­dag og þar sagt að ef nokkrar millj­ónir króna yrðu ekki greiddar myndu upp­lýs­ing­arnar fara til fjöl­miðla.

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans snér­ust umræddar upp­lýs­ingar um að for­sæt­is­ráð­herra ætti að hafa beitt sér með ein­hverjum hætti fyrir því að Björn Ingi Hrafns­son, útgef­andi og aðal­eig­andi DV, myndi fá ein­hvers­konar fjár­hags­lega fyr­ir­greiðslu. Hlín Ein­ars­dóttir er fyrrum sam­býl­is­kona Björns Inga til margra ára en sam­bandi þeirra lauk í fyrra.

Sig­mundur Davíð sendi frá sér yfir­lýs­ingu í gær þar sem hann sagð­ist engin fjár­hags­leg tengsl hafa við Björn Inga né hafi hann komið að kaupum Vef­pressunnar á DV í fyrra­haust á neinn hátt. Björn Ingi sagði sömu­leiðis í stöðu­upp­færslu á Facebook að for­sæt­is­ráð­herra ætti ekki hlut í DV.

Malín Brand sagði í við­tali við Vísi í gær að hún hefði ekki skipu­lagt fjár­kúg­un­ina og ekki sent bréfið á eig­in­konu for­sæt­is­ráð­herra. Hennar mis­tök hafi verið að fara með systur sinni í afdrifa­ríka öku­ferð sunnan Valla­hverfis á föstu­dag þar sem þær voru hand­teknar. Játning um aðild að mál­inu liggur fyrir að hálfu beggja systr­anna. Málið telst að mestu upp­lýst en ekki hefur verið tekin ákvörðun um ákæru. Allt að sex ára fang­elsi getur legið við broti sem þessu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár