Musk veitir brottrækum á Twitter „almenna sakaruppgjöf“

Eigandi Twitter hefur boðið fyrr­ver­andi Banda­ríkja­for­seta og fleiri brott­ræka vel­komna aftur á sam­fé­lags­mið­il­inn. Ákvörð­un­ina byggði hann, að hluta til, á skoð­ana­könnun á eigin prófíl.

Elon Musk, eigandi Twitter og ríkasti maður í heimi.
Elon Musk, eig­andi Twitter og rík­asti maður í heimi. Mynd: EPA

Elon Musk, eig­andi Twitter og rík­asti maður í heimi, ætlar að veita öllum þeim sem hafa verið bann­aðir á sam­fé­lags­miðl­inum, fyrir nær hvaða sakir sem er, heim­ild til að snúa aftur á mið­il­inn.

Ákvörð­un­ina tók Musk eftir að nið­ur­stöðu óform­legrar skoð­ana­könn­unar sem hann gerði á Twitter-aðgangi sínum í vik­unni. Þegar 72 pró­sent svar­enda sögð­ust fylgj­andi því að hleypa brott­rækum Twitter-not­endum aftur á mið­il­inn lýsti Musk því yfir að bann­aðir not­endur fá að snúa aftur í næstu viku. Þó ekki þeir sem hafa brotið lög.

[adspot]Musk segir að um „almenna sak­ar­upp­gjöf“ (e. general amnesty) sé að ræða. Meðal þeirra sem fá Twitter-aðgang­inn sinn aftur er Donald Trump, fyrr­ver­andi Banda­ríkja­for­seti. Musk er reyndar nú þegar búinn að veita honum aðgang.

[links]Trump, sem und­ir­býr sig nú fyrir for­seta­fram­boð 2024, hyggst þó ekki snúa aftur, að minnsta kosti ekki í bráð. Twitter-aðgangi Trump var eytt eftir árás­ina á þing­húsið í Washington í jan­úar í fyrra.

Aðeins Trump sjálfur getur svarað af hverju hann vill ekki snúa aftur, en ástæð­urnar eru lík­lega fyrst og fremst fjár­hags­legar skuld­bind­ingar sem Trump þarf að standa við sem tengj­ast hans eigin sam­fé­lags­miðli, Truth Social.

„Fólkið hefur talað“

Yfir 3,1 milljón Twitter-not­enda tók þátt í skoð­ana­könnun Musk og kusu 72,4 pró­sent með því að leyfa hinum brott­ræku að snúa aftur.

„Fólkið hefur talað. Sak­ar­upp­gjöfin hefst í næstu viku,“ tjáði Musk 118,9 milljón fylgj­endum sínum.

Ekki liggur fyrir hvernig nákvæm­lega almenna sak­ar­upp­gjöfin mun fara fram. Musk hefur nú þegar gert aðganga rapp­ar­ans Ye (áður Kanye) og umdeilda áhrifa­valds­ins Andrew Tate virka á ný. Sam­sær­is­kenn­inga­smið­ur­inn Alex Jones verður hins vegar ekki boð­inn vel­kom­inn aftur á Twitter. Jones hefur meðal ann­ars verið gert að greiða 1,44 millj­arða Banda­ríkja­dali í skaða­bætur til aðstand­enda fórn­ar­lamba í skotárásinni í Sandy Hook-grunn­skól­anum árið 2012 fyrir að halda því statt og stöðugt fram að árásin hafi verið svið­sett. 20 börn og sex full­orðnir lét­ust í skotárásinni.

Musk greiddi 44 millj­arða banda­ríkja­dala fyrir Twitt­er. Kaupin gengu ekki snurðu­laust fyrri sig. Musk keypti fyrst hluta­bréf í Twitter í upp­­hafi árs og í byrjun apríl var hlutur hans í fyr­ir­tæk­inu kom­inn yfir níu pró­­sent og var hann þar með orð­inn meðal stærstu hlut­hafa í Twitter og bauðst að taka sæti í stjórn fyr­ir­tæk­is­ins. Hann afþakk­aði boðið og sagði ljóst að sam­­fé­lags­mið­ill­inn gæti hvorki dafnað né þjónað til­­­gangi sínum í núver­andi formi.

Í kjöl­farið gerði hann yfir­­­tökutil­­boð upp á 44 millj­­arða Banda­­ríkja­dala sem stjórn Twitter hafn­aði í fyrstu en ákvað svo að ganga að. Yfir­­takan komst þó í nokkuð upp­­­nám í maí, áður en hlut­hafar höfðu tekið afstöðu til til­­­boðs­ins, þegar Musk sak­aði Twitter um að standa í vegi fyrir því að hann fengi upp­­lýs­ingar um hversu hátt hlut­­fall not­enda mið­ils­ins eru gervi­­­menni (e. bots).

Í tísti sem hann sendi frá sér greindi hann frá því að kaup hans á sam­­­fé­lags­mið­l­inum hefðu verið sett á ís þar sem hann væri að bíða eftir gögnum sem gætu rök­­­stutt full­yrð­ingar Twitter um að hlut­­­fall gervi­­­­­menna á sam­­­fé­lags­mið­l­inum væri innan við fimm pró­­­sent.

Allt stefndi í að mögu­leg yfir­taka rík­asta manns heim yrði gerð upp fyrir dóm­stólum en í lok októ­ber gekk Musk loks frá kaup­un­um, degi áður en loka­frestur til þess rann út. „Fugl­inn er frjáls!“ tísti Musk. Meðal fyrstu verka hans sem eig­andi Twitter var að segja upp tæp­lega helm­ingi starfs­fólks og leggja mann­rétt­inda­deild fyr­ir­tæk­is­ins nið­ur.

Aukin áreitni, hatur og upplýsingaóreiða

Nú hefur hann bætt í og ákveðið að hleypa fjölda not­enda aftur á mið­il­inn sem hafði verið úthýst. AP-frétta­stofan bendir á að skoð­ana­könn­unin sem Musk byggir ákvörðun sína á er langt frá því að vera vís­inda­leg og að auð­velt sé fyrir gervi­menni að hafa áhrif á nið­ur­stöð­una.

Sér­fræð­ingar á sviði net­ör­yggis benda á að ákvörðun Musk mun leiða til auk­inna áreitni, hat­urs­orð­ræðu upp­lýs­inga­óreiðu á Twitter.

Musk var ekki lengi að bregð­ast við frétt AP eins og honum einum er lagið og sagði Twitter aldrei geta keppt við AP-frétta­stof­una þegar kemur að upp­lýs­inga­óreiðu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

musk

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár