Tilkynningar um kynferðisofbeldi í framhaldsskólum ekki skráðar sérstaklega

Mennta- og barna­mála­ráðu­neytið heldur ekki sér­stak­lega utan um til­kynn­ingar sem snúa að kyn­ferð­is­of­beldi og kyn­ferð­is­legri áreitni í fram­halds­skólum. Kallað hefur verið eftir bættum við­bragðs­á­ætl­unum og segir for­maður starfs­hóps slíkar liggja fyrir.

Ekki er haldið sérstaklega utan um tilkynningar um kynferðisofbeldi og kynferðislega áreitni í framhaldsskólum.
Ekki er haldið sér­stak­lega utan um til­kynn­ingar um kyn­ferð­is­of­beldi og kyn­ferð­is­lega áreitni í fram­halds­skólum. Mynd: Pexels

Umfang kyn­ferð­is­brota og til­kynn­inga um kyn­ferð­is­lega áreitni innan fram­halds­skóla er óljóst. Ekki er haldið utan um slíkar til­kynn­ingar.

Þegar Kjarninn óskaði eftir upp­lýs­ingum um til­kynn­ingar um kyn­ferð­is­of­beldi og/eða kyn­ferð­is­lega áreitni í fram­halds­skólum eins langt og þær ná aftur feng­ust þau svör frá mennta- og barna­mála­ráðu­neyt­inu, sem fram­halds­skól­arnir heyra undir, að „slíkur mið­lægur gagna­grunnur yfir til­kynn­ingar er ekki til staðar“ og að því sé ekki hægt að veita slíkar upp­lýs­ingar.

Viðbrögð skóla­stjórn­enda við kyn­ferð­is­of­beldi og kyn­ferð­is­legri áreitni innan fram­halds­skóla hefur verið til umræðu und­an­farið eftir að aðferð skóla­stjóra við Fjöl­brauta­skóla Suð­ur­lands við að upp­lýsa nem­endur um ásak­anir um kyn­ferð­is­brot sem átti sér stað innan veggja skól­ans.

Tilkynning skólastjóra gagnrýnd: „Gerandi saklaus þar til sekt er sönnuð“

Í lok ágúst fengu nem­endur og aðstand­endur tölvu­póst þess efnis að lög­reglu­rann­sókn stæði yfir vegna ásak­ana um kyn­ferð­is­brot þar sem nem­andi er grun­aður um að hafa brotið kyn­ferð­is­lega gegn sam­nem­anda sínum innan skól­ans. Í tölvu­póst­inum voru nem­endur sér­stak­lega beðnir um að ræða málið ekki á sam­fé­lags­miðlum og dóm­stóll göt­unnar var sagður óvæg­inn. „Það er ekki búið að dæma í mál­inu og því er ger­andi sak­laus þar til sekt er sönnuð,“ segir meðal ann­ars í tölvu­pósti skóla­stjór­ans.

Formaður nem­enda­fé­lags FSu harm­aði við­brögð skóla­stjóra við mál­inu og sagði í Kast­ljósi að nauð­syn­lega vant­aði aðgerða­á­ætlun þegar kemur að ofbeld­is­málum innan skól­ans.

Viðbragðsáætlun legið fyrir ef ráðuneytið hefði farið eftir tillögum starfshóps

Sólborg Guð­brands­dóttir, sem hefur beitt sér und­an­farin ár fyrir heil­brigðum sam­skiptum, kyn­heil­brigði og ofbeld­is­vörnum, fór fyrir starfs­hópi um mark­viss­ari kyn­fræðslu og ofbeld­is­for­varnir í grunn- og fram­halds­skólum sem skil­aði Lilju Alfreðs­dóttur, þáver­andi mennta­mála­ráð­herra, til­lögum í júlí í fyrra. Sólborg vakti athygli á því á Twitter að við­bragðs­á­ætlun hefði legið fyrir í Fjöl­brauta­skól­anum á Suð­ur­landi ef ráðu­neytið hefði fylgt til­lögum starfs­hóps­ins eftir í stað þess að „stinga henni beint ofan í skúffu“.

Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barna­mála­ráð­herra, brást við með því að boða Sólborgu á fund. Þá sagði hann í sam­tali við mbl.is að lagt hafi verið til að fram­halds­skólar kæmu sér upp við­bagðs­á­ætl­unum vegna kyn­ferð­is­of­beldis og að ráðu­neytið hefði hvatt til þess. Þá sagði ráð­herra að setja þurfi meiri kraft í þessa vinnu í sam­vinnu við skól­ana og að þetta verði „eitt af áherslu­at­riðum vetr­ar­ins“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár