Viljið þið fjárfesta í bakgarði talibananna?

Mik­il­vægar fréttir fyrir gang efna­hags­mála í Afganistan komu fram í dags­ljósið fyrr í mán­uð­inum, sem hafa ekki fengið mikla athygli. Herdís Sig­ur­gríms­dóttir rýndi í stöðu mála í þessu stríðs­hrjáða ríki.

Á aðventu gerð­ist tvennt sem getur haft gríð­ar­mikil jákvæð áhrif fyrir afganska efna­hag­inn, sem þarfn­ast sár­lega góðra frétta. Viku fyrir aðfanga­dag gerð­ist Afganistan með­limur í Alþjóða­við­skipta­stofn­un­inni WTO. Fjórum dögum áður höfðu afgönsk stjórn­völd und­ir­ritað vilja­yf­ir­lýs­ingu um gríð­ar­miklar gasleiðslur sem eiga að liggja þvert yfir landið og flytja gas frá Túrk­menistan til Indlands.

En kálið er ekki sopið þó í aus­una sé komið. Aðgangur að mörk­uðum og háar fjár­hæðir í samn­ingum gefa fögur fyr­ir­heit, en leiðin er löng þaðan og að tak­mark­inu um traustan efna­hag. Það traust sem vinnst við góða samn­inga, hverfur á ný við tíðar fréttir um land­vinn­inga tali­bana und­an­farið ár.

Afganska ríkið er að miklu leyti rekið með fjár­gjöfum alþjóða­sam­fé­lags­ins. Alþjóða­bank­inn stýrir gríð­ar­miklum sjóði sem borgar m.a. laun kenn­ara og emb­ætt­is­manna og heldur uppi miklu af dag­legum rekstri. Um þrír fjórðu af vergri þjóð­ar­fram­leiðslu er gjafafé frá erlendum ríkjum og eit­ur­lyfja­fram­leiðsla stendur fyrir helm­ingnum af rest­inni. Ríkið græðir vita­skuld lítið á þeim iðn­aði, nema síður sé. Því er nauð­syn­legt að byggja upp aðrar tekju­lindir, sem núver­andi for­seti vinnur hörðum höndum að.

Hæfur forseti í kviksyndi erfiðra stjórnmála

Alþjóða­sam­fé­lagið gladd­ist inni­lega þegar Ashraf Ghani mæld­ist með for­ystu í könn­unum fyrir afgönsku for­seta­kosn­ing­arnar 2014. Hann er með dokt­ors­gráðu í mann­fræði en hefur skrifað mikið um það hvernig eigi að byggja upp brot­hætt ríki eftir stríðs­á­tök. Hann hefur m.a. unnið fyrir Alþjóða­bank­ann og kennt við banda­rísku háskól­ana Berkeley og John Hopkins. Hann var fjár­mála­ráð­herra í fyrstu rík­is­stjórn­inni eftir fall tali­bana 2002-2004. Þá kom hann miklu í verk á stuttum tíma; vann hratt og ákveðið að því að koma hlut­unum í rétt horf.

Ghani hlaut flest atkvæði í annarri umferð en aðal­keppi­naut­ur­inn neit­aði að sætta sig við úrslitin vegna umfangs­mik­ils kosn­inga­svindls. Það stefndi í óefni. John Kerry, utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna, flaug til Afganist­ans til að miðla málum. Keppi­naut­arnir end­uðu nauð­ugir í sam­steypu­stjórn, en sam­starfið hefur verið stirt. Ghani er í raun með stjórn­ar­and­stöð­una inni á gafli og þarf að gera mála­miðl­anir um hverja minnstu ákvörðun. Stjórnin hefur fyrir vikið verið frekar mátt­laus.

Ghani hefur þrátt fyrir það gert ýmis­legt gott, sér­stak­lega þegar kemur að sam­starfi við nágranna­ríkin og alþjóða­sam­fé­lagið, sbr gasleiðsl­una og WTO-aðild­ina. Hann hefur sett upp tíu ára plan, um að landið skuli vera óháð erlendum fjár­gjöfum árið 2024. Stóru sókn­ar­færin í áætl­un­inni eru ann­ars vegar auð­æfin sem eru fólgin í stein­dum og málmum í afgönskum fjöllum, hins vegar að örygg­is­á­standið leyfi vöru­flutn­inga og versl­un­ar­leiðir í gegnum landið. Það blæs hins vegar ekki byr­lega fyrir áætl­anir for­set­ans. Byrjum á gasleiðsl­unni.

Gasleiðsla upp á náð og miskunn talibana

TAPI-gasleiðslan, sem Túrk­menistan, Afganistan, Pakistan og Indland komu sér saman um á dög­unum, hefur lengi verið á teikni­borð­inu. Hug­myndin er að flytja gas í stórum stíl frá fram­leið­and­anum Túrk­menistan til stórra mark­aða í Pakistan og Indlandi. Stysta leiðin liggur þvert yfir Afganistan.

Ef af verður, getur þetta verið mikil lyfti­stöng fyrir afganskan efna­hag: miklar inn­viða­fram­kvæmdir og tekjur af sam­starf­inu. Án efa myndi landið líka fá dável af gasi í sinn hlut, sem yrði kær­komin búbót og hluti af lausn­inni á við­var­andi orku­skorti.

Verk­efn­inu myndu fylgja miklar vega­fram­kvæmdir og –við­gerðir, sem einar og sér myndu gera það auð­sótt­ara að koma afgönskum vörum, aðal­lega land­bún­að­ar­af­urðum, á markað. Afganski for­set­inn hefur kallað leiðsl­una “nýja silki­veg­inn”, sem vísar til þess tíma þegar Afganistan lá í alfara­leið alþjóð­legra við­skipta, þ.e.a.s. á mið­öldum. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár