Tveir hæstaréttardómarar, Markús Sigurbjörnsson og Viðar Már Matthíasson, hafa óskað eftir lausn frá embætti dómara við Hæstarétt. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, starfandi dómsmálaráðherra, greindi frá þessu á ríkisstjórnarfundi í morgun.
Samkvæmt upplýsingum frá dómsmálaráðuneytinu munu þeir hætta störfum frá og með 1. október næstkomandi. Samhliða verður dómurum við Hæstarétt fækkað úr átta í sjö, líkt og staðið hefur til frá því að nýju millidómstígi, Landsrétti, var komið á. Eitt embætti dómara við Hæstarétt verður því auglýst til umsóknar á næstunni og nýr dómari skipaður í aðdraganda þess að Markús og Viðar Már hætta störfum.
[adspot]Markús hefur verið dómari við Hæstarétt Íslands frá árinu 1994, eða í 25 ár. Hann var varaforseti Hæstaréttar 2002 og 2003 og forseti Hæstaréttar 2004 og 2005 og frá 01. janúar 2012 til loka árs 2016. Áður en að Markús var skipaður dómari var hann meðal annars prófessor í réttarfari við lagadeild Háskóla Íslands 1988 -1994. Enginn dómara við Hæstarétt í dag kemst nálægt því að hafa setið þar jafn lengi og Markús. Sá sem kemst næst því er Ólafur Börkur Þorvaldsson sem var skipaður í embætti árið 2003.
Þar á eftir kemur Viðar Már sem var skipaður 2010. Hann var varaforseti Hæstaréttar Íslands frá byrjun árs 2012 og út árið 2016. Viðar Már var prófessor í skaðabótarétti við lagadeild Háskóla Íslands 1996 – 2010 og var auk þess settur hæstaréttardómari í aðdraganda þess að hann var skipaður í embættið, eða á árunum 2009 til 2010.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.













































Athugasemdir