Leikhús

Skammarþríhyrningurinn

Verkið Skammarþríhyrningurinn gerist í fjarlægri framtíð. Menningarstríðinu er lokið: kynrænt sjálfræði, hinsegin mannréttindi og kvenfrelsi heyra sögunni til. Bakslagið hefur náð endatakmarki sínu.

Í þessum ímyndaða hliðarveruleika við daufari enda regnbogans stendur hópur sérfræðinga fyrir glæstri opnun á sögusafni um hina myrku tíma pólitíska rétttrúnaðarins sem við nú lifum, En verkefni þeirra er afar flókið því bækurnar hafa allar verið brenndar, heimildirnar eru horfnar og mannlegur fjölbreytileiki utan strangrar tvíhyggju hefur verið bannaður og ritskoðaður úr sögunni.

Við fylgjumst með þessum hópi reyna að púsla saman mynd af mannréttindaparadísinni sem eitt sinn var á Íslandi og svara aðkallandi spurningum. Hvað í ósköpunum var Pride? Hvernig bjargaði J.K. Rowling kvennaklósettinu frá alþjóðlegum nauðgarasamtökum? Hverskonar te drukku svokallaðar dragdrottningar? Hvar fór innræting barna fram? Hver var þessi Hán?

Leikhópurinn Stertabenda var stofnaður 2016 og hefur þróað sérstætt sviðstungumál Camp aðferða og hinsegin fagurfræði þar sem húmor og gáski ráða för í vægðarlausri krufningu á samtímanum. Fyrri verk hópsins eru Stertabenda (2016), Insomnia (2018) og Góðan daginn, faggi (2021).

Höfundur Leikhópurinn Stertabenda
Leikstjórn Gréta Kristín Ómarsdóttir
Leikarar Árni Pétur Guðjónsson, Bjarni Snæbjörnsson, Embla Guðrúnar-Ágústsdóttir, Fannar Arnarsson, Kristrún Kolbrúnardóttir og Sindri Sparkle.

Leikmynd og búningar: Eva Signý Berger Dramatúrg: Egill Andrason Tónlist: Axel Ingi Árnason í samstarfi við Egil Andrason Ljósahönnun: Ólafur Ágúst Stefánsson Dans- og sviðshreyfingar: Cameron Corbett Leikgervi: Ray Milano Framleiðendur: Davíð Freyr Þórunnarson og Ragnheiður Maísól Sturludóttir

Borgarleikhúsið

Greinar

Umsagnir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Stundin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár