Fréttamál

Karolinafund

Fólk

Týndu stelp­urnar sem urðu vitni að morði

Týndu Stelp­urnar er kvik­mynd eftir Lovísu Láru Hall­dórs­dóttur sem var tekin upp síð­ast­liðið sumar. Aðal­per­sónur mynd­ar­innar eru stúlkur á fjórt­ánda ald­ursári sem verða vitni að morði. Þegar þær vin­konur fara að skyggn­ast undir yfir­borðið í kjöl­far þess voveif­lega atburðar verður þeim fljótt ljóst að ekki allt sem sýn­ist. Lovísa Lára Hall­dórs­dóttir hefur unnið að mörgum verk­efnum, til að mynda gerði...
Fólk

Hljóm­sveit úr myrk­ustu innviðum Kópavogs

„Við erum bara þessi dæmi­gerðu hjón um fer­tugt, með þrjú börn, fjöl­skyldu­bíl og íbúð í myrk­ustu innviðum Kópavogs,“ segir Ívar Páll Jónsson í hljóm­sveit­inni Jane Tel­ephonda og á þar við Linda­hverfið. „Linda­hverfið er smám saman að taka við af 101 Reykja­vík sem höf­uð­stöð menn­ing­ar­lífs á Stór-Kópa­vogs­svæð­inu,“ segir hann. „We be repres­ent­ing the Lauga­hverfi hood,“ bætir hann við. „Af bestu getu.“...
Fólk

Spil sem inni­heldur fróð­leik um íslenska varp­fugla

Birgitta Stein­gríms­dóttir, meist­ara­nemi í umhverfis- og auð­linda­fræði, og Heiðdís Inga Hilm­ars­dóttir, vöru­hönn­un­ar­nemi, hafa verið vin­konur frá unga aldri. Þær náðu að sam­eina áhuga­mál sín þegar þær unnu saman að gerð fjöl­skyldu­spils­ins Fugla­fárs sem inni­heldur fróð­leik um íslenska varp­fugla. Um þessar mundir standa þær fyrir hóp­fjár­mögnun á spil­inu á Karolina Fund þar sem áhuga­sömum gefst tæki­færi á að næla sér í...
Fólk

Vilja að háskóla­nám verði nátt­úru­legt fram­hald af mennta­skóla

Nemar ehf. er fyr­ir­tæki sem stendur fyrir því að hjálpa nem­endum að standa sig í háskóla. Hugsjón þeirra er að gera háskóla­nám eins og nátt­úru­legt fram­hald af mennta­skóla, og ætla þeir að búa til nám­skeið sem sett verða á netið og nemar geta fengið aðgang að. Stofn­end­urnir nema nú hag­fræði og við­skipta­fræði við Háskóla Íslands. Eftir að hafa byrjað í...
Fólk

Tilgáta sem gerir rök­færslur auð­skilj­an­legar

Greppur Torfason, höf­undur bók­ar­innar Dagg­ar­markstil­gátan, er meist­ara­nemi í heim­speki við Háskóla Íslands. Verði hann var við rök­legar mót­sagnir, segir hann áhuga sinn sam­stundis vak­inn. Greppur stendur einn að Karolina Fund verk­efn­inu Dagg­ar­markstil­gátan, sem snýst um að fjár­magna útgáfu all-sér­stakrar bókar með sama nafni – bókar sem fjallar um heims­fræði (e. cosmology). Það er ekki vitað til þess að aðrir Íslend­ingar...
Fólk

Karolina Fund: Myndir sem gefa vís­bend­ingar um aðstæður

Sigurður Mar Hall­dórs­son ljós­mynd­ari hefur lengi notað mynda­vél­ina sem tæki til að skrá­setja atburði og segja sögur vænt­an­legt er smá­sagna­safn eftir hann sem nefn­ist ein­fald­lega Sögur. Bókin er óvenju­leg að því leyti að í henni eru engin orð heldur aðeins ljós­myndir. Myndir sem gefa vís­bend­ingar um aðstæður, atburði eða augna­blik og skilja eftir spurn­ingar sem les­and­inn verður að leita svara...
Fólk

Karolina Fund: Alter Ego inn­blásin af níunda ára­tugnum

Berndsen er verk­efni sem byrj­aði árið 2008 í Hollandi. Þar kynnt­ust Davíð Berndsen og Svein­björn Thoraren­sen, byrj­uðu að fikta á gömul hljóm­borð og semja músík undir miklum áhrifum nýróm­an­tískrar stefnu. Kjarninn hitti Davíð Berndsen og tók hann tali. Hvað er hljóm­sveitin Berndsen með á prjón­unum þessa dag­ana? „Þessa dag­ana erum við að steikj­ast inn í stúd­íó­inu! Því sólin skín beint...
Viðtal

Karolina Fund: Huldu­fólkið gefur rödd­inni tón­inn

Olèna er söngv­ari, laga­höf­undur og fram­leið­andi indí-raf­tón­listar. Upp­runa­lega er Olèna frá Frakk­landi en hefur búið í Reykja­vík síð­ustu 10 ár. Olèna til­heyrir þeim parti íslensks sam­fé­lags sem tengir sterkt við huldu­fólk og hún segir að þau gefi henni þennan sér­staka hljóm í rödd­inni, en það er óró­legur og við­kvæmur tónn sem virð­ist koma langt að handan, nær heimi drauma en...

Mest lesið undanfarið ár