Flokkur

Fréttir

Fréttir

Kona bæj­ar­stjór­ans ráðin í starf sem flutt var úr ráðu­neyti

Hall­gerður Gunn­ars­dóttir var í síð­ustu viku ráðin í starf lög­fræð­ings á sviði gjaf­sókn­ar­mála hjá sýslu­mann­inum á Vest­ur­landi. Hall­gerður sinnti starf­inu áður hjá sýslu­manns­emb­ætt­inu í Kópavogi, eða þar til starfið var flutt til inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins í fyrra. Um ára­mótin færð­ist staðan svo til sýslu­manns­ins á Vest­ur­landi sem hefur aðsetur í Stykk­is­hólmi, þar sem eig­in­maður Hall­gerðar, Sturla Böðv­ars­son, er bæj­ar­stjóri. Staðan var aug­lýst...
FréttirFerð til fjár

Hag­fræði­doktor og Ingólfur Arnarson útskýra hag­fræði

„Bóka­skil­grein­ingin er sú að hag­fræði er félags­vís­indi sem fjalla um hvernig ein­stak­lingar, fyr­ir­tæki og þjóðir skipta með sér gæðum sem eru af skornum skammti. En meira skýr­andi væri að segja að hag­fræði er grein sem notar vís­inda­legar aðferðir til þess að sjá hvernig ákvarð­anir eru teknar,“ sagði Sigríður Bene­dikts­dóttir í síð­asta þætti af Ferð til fjár, þegar hún var beðin...
Fréttir

Íbúi í Brussel: Spenna í sam­fé­lag­inu og fólk áhyggju­fullt

Árni Snævarr, sem starfar sem upp­lýs­inga­full­trúi hjá Sam­ein­uðu þjóð­unum í Brussel, segir tölu­verðrar spennu gæta meðal fólks í Brussel vegna hryðju­verkaógnar sem stjórn­völd í Belgíu hafa brugð­ist við af hörku. Hann segir her­menn einkum sýni­lega í svoköll­uðu Evr­ópu­hverfi í borg­inni, en Charles Michel, for­sæt­is­ráð­herra, tók ákvörðun um það í dag að 300 þung­vopn­aðir her­menn myndu aðstoða lög­reglu í borg­inni við...
FréttirFerð til fjár

Krakk­arnir stóð­ust freist­ing­una í syk­ur­púða­til­raun­inni

Í síð­asta þætti af Ferð til fjár fylgd­umst við með Hauki Frey Gylfa­syni, við­skipta­fræð­ingi og sál­fræð­ingi, fram­kvæma hina svoköll­uðu syk­ur­púða­til­raun. Haukur Freyr, sem er aðjúnkt við Háskól­ann í Reykja­vík og hefur sér­hæft sig í atferl­is­rann­sóknum tengdum fjár­mála­hegðun, fékk til liðs við sig nokkur börn á leik­skóla­aldri, og kann­aði hversu auð­velt þau eiga með að seinka umbun. Syk­ur­púða­til­raunin á rætur að...
Fréttir

Þung­arokk gegn þung­lyndi og geð­veiki

„Ætlunin er að vekja á því athygli hve hættu­legir og alvar­legir geð­sjúk­dómar geta verið, enda hafa allir með­limir sveit­ar­innar kynnst því af eigin raun á einn eða annan hátt,“ segir Ágúst Örn Pálsson, gít­ar­leik­ari og söngv­ari í þung­arokks­hljóm­sveit­inni Röskun. Aðrir með­limir eru Heiðar Brynjars­son trommu­leik­ari, Magnús Hilmar Felixson bassa­leik­ari og söngv­ari, og Þorlákur Lyngmo gít­ar­leik­ari og söngv­ari. Þeir félagar hafa...
Fréttir

Jón Steinar snýr aftur í dóms­sal

Jón Steinar Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi hæsta­rétt­ar­dóm­ari, ætlar að hefja lög­manns­störf á ný þann 1. mars næst­kom­andi. Hann stað­festi þetta í sam­tali við Kjarnann. Jón Steinar og sonur hans, Konráð Jónsson, ætla þá að hefja störf hjá Veritas lög­mönnum í Borg­ar­túni. Jón Steinar segir þeir muni starfa sjálf­stætt undir merkjum Veritas og svo komi í ljós hvort ein­hver vilji ráða þá í...
Fréttir

Vinnu­regla að for­sæt­is­ráð­herra fari ekki nema vera sér­stak­lega boðið

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra segir það vinnu­reglu í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu að ráð­herr­ann sé „aldrei sendur nema honum sé sér­stak­lega boðið.“ Þetta sé vegna þess að mjög margar upp­á­komur væru þess virði að sækja og nauð­syn­legt hefði verið að tak­marka slíkt. Þetta sagði for­sæt­is­ráð­herra í við­tali við Reykja­vík síð­degis á Bylgj­unni í dag, í umræðum um hvers vegna hann fór ekki á...
Fréttir

For­sæt­is­ráðu­neytið: Betra ef ein­hver hefði mætt til Parísar

For­sæt­is­ráðu­neytið telur, eftir á að hyggja, að betur hefði farið á því að ein­hver af æðstu emb­ætt­is­mönnum þjóð­ar­innar hefði mætt til sam­stöðu­göng­unnar í París á sunnu­dag. Þrátt fyrir það hefur franska sendi­ráðið hér á landi sagt frönsk stjórn­völd sýna því fullan skiln­ing að stað­geng­ill sendi­herra hafi tekið þátt í göng­unni fyrir hönd lands­ins. Þetta kemur fram í nýrri til­kynn­ingu frá...
Fréttir

Samtök gegn íslam­svæð­ingu komin til Íslands

Pegida, „sam­tök fólks gegn islam­væð­ingu Evrópu“, hafa verið stofnuð á Íslandi. Facebook-síða hefur verið stofnuð og tæp­lega 270 manns hafa látið sér líka við hana. Samtökin segj­ast ætla að birta frétta­tengt efni sem teng­ist inn­reið og upp­gangi Íslams í Evrópu, efni sem þau segja að fjöl­miðlar á Íslandi birti ekki vegna þögg­unar og póli­tísks rétt­trún­aðar. [caption id="attachment_16759" align="alignnone" width="765"] Pegida...
Fréttir

SUS: Fordæma ummæli Ásmundar og vilja að hann biðj­ist afsök­unar

Ungir sjálf­stæð­is­menn hvetja Ásmund Frið­riks­son til þess að biðja íslenska múslima afsök­unar á ummælum sínum um að kanna eigi bak­grunn múslima hér á landi. Þetta kemur fram í ályktun Sambands ungra sjálf­stæð­is­manna, sem var send til fjöl­miðla rétt fyrir hádegi. „Mik­il­vægt er að leið­togar heims­ins gefi ekki eftir í bar­átt­unni gegn hryðju­verka­hópum eins og Íslamska rík­inu, en reyni jafn­framt á...
Fréttir

Áslaug Arna: Átak­an­legt að vera í sama flokki og Ásmundur

Ásmundur Frið­riks­son þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, spurði að því á Facebook-síðu sinni í gær­kvöldi hvort bak­grunnur múslima á Íslandi hafi verið kann­aður, og hvort ein­hverjir þeirra hafi farið í þjálf­un­ar­búðir hryðju­verka­manna eða barist í löndum þar sem „óöld ríkir meðal múslima.“ Í við­tali við Vísi segir Ásmundur að hann sé að vekja umræðu um þessi mál. „Ég velti því fyrir mér hvort...
Fréttir

Lög­reglu­menn vilja meiri menntun og þjálfun í nauðg­un­ar­málum

Mennt­un­ar­kröfur lög­reglu­manna og rann­sak­enda á Íslandi eru afar lágar og rann­sókn­ar­lög­reglu­menn telja sjálfir ríka ástæðu til að bæta nám, þjálfun og fræðslu hvað varðar rann­sóknir nauðg­unar- og kyn­ferð­is­brota. Þetta kemur fram í rann­sókn þar sem við­horf og reynsla fag­að­ila sem koma að með­ferð nauðg­un­ar­mála var skoðuð. Hildur Fjóla Ant­ons­dóttir, mann- og kynja­fræð­ingur, vann rann­sókn­ina á vegum Eddu-önd­veg­is­set­urs og í sam­starfi...

Mest lesið undanfarið ár