Flokkur

Fréttir

Fréttir

Skuldir Lands­virkj­unar hafa lækkað um 80 millj­arða króna frá 2009

Hagnaður Lands­virkj­unar nam 78,4 millj­ónum Banda­ríkja­dala eða rúm­lega tíu millj­örðum íslenskra króna á síð­asta ári, sam­kvæmt árs­reikn­ingi fyrir árið 2014 sem var birtur í dag. Þetta er tölu­verður við­snún­ingur í rekstr­inum því árið 2013 varð 38,5 millj­óna dala tap á rekstr­inum, eða sem nemur fimm millj­örðum króna. Rekstr­ar­tekjur Lands­virkj­unar hækk­uðu um 15,4 millj­ónir dala á milli ára, í 438,3 millj­ónir...
Fréttir

Skatt­rann­sókn­ar­stjóri gengur til samn­inga um kaup á gögn­unum

Bryndís Krist­jáns­dóttir, skatt­rann­sókn­ar­stjóri, ætlar að ganga til samn­inga við mann­inn sem býr yfir gögnum um eignir Íslend­inga í skatta­skjólum, en hann vill fá 150 millj­ónir fyrir þau. Þetta kom fram í fréttum Bylgj­unnar í hádeg­inu í dag. Bryndís Krist­jáns­dóttir skatt­rann­sókn­ar­stjóri segir að gengið verði til samn­inga við selj­anda gagna um Íslend­inga í skatta­skjólum á grund­velli yfir­lýs­ingar fjár­mála­ráð­herra frá því í...
Fréttir

Guðni Ágústs­son hættir í mjólk­inni, ástæðan aðhalds­að­gerðir

Guðni Ágústs­son, fyrrum for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, mun hætta sem fram­kvæmda­stjóri Samtaka afurða­stöðva í mjólkur­iðn­aði (SAM) í næstu viku þegar aðal­fundur sam­tak­ana fer fram. Sam­komu­lag varð á milli SAM og Guðba um starfs­lokin og þau skýr­ast fyrst og fremst af aðhalds­að­gerðum innan sam­tak­ana. Þetta kemur fram í Frétta­blað­inu í dag. Þar er haft eftir Guðna að tími sé til kom­inn að fara...
Fréttir

Nokkrar athygl­is­verðar stað­reyndir um Super Bowl leik­inn

Super Bowl, eða úrslita­leik­ur­inn um Ofur­skál­ina svoköll­uðu, fer fram í kvöld þegar ruðn­ings­liðin New England Patriots og Seattle Seahawks leiða saman hesta sína á leik­vangi háskól­ans í Phoenix. Um er að ræða stærsta íþrótta­við­burð Banda­ríkj­anna ár hvert, en sýn­ingin í hálf­leik er jafnan stór­feng­leg. Í ár verður sýn­ingin í höndum popp­stjarn­anna Katy Perry og Missi Elliott. Aðeins á þakk­ar­gjörð­ar­dag­inn inn­byrða...
Fréttir

Færri treysta Sjálf­stæð­is­flokknum fyrir inn­flytj­enda­málum

Færri telja Sjálf­stæð­is­flokk­inn bestan til þess fall­inn að leiða inn­flytj­enda­mál á Íslandi en í fyrra og fyrir þremur árum. Þetta kemur fram í könnun MMR á því hvaða stjórn­mála­flokka fólk telur best til þess fallna að leiða ákveðna mála­flokka. Flestir treysta flokknum þó enn fyrir mála­flokknum, en 25,6 pró­sent svar­enda töldu Sjálf­stæð­is­flokknum best treystandi fyrir inn­flytj­enda­málum. Þegar MMR spurði sömu...
FréttirFerð til fjár

Bensínið jafn dýrt og 2007 – Minni verð­munur á mjólk og bens­íni

Verð á bens­ín­lítra á afgreiðslu­stöðvum olíu­fé­lag­anna er í dag svipað og það var fyrir um sjö árum síðan.* Á föstu verð­lagi er lítra­verðið í dag ekki fjarri algengu verði á tíma­bil­unum 2004 til 2007 og 200o til 2001. Það er þó enn tölu­vert hærra en það var fyrir alda­mótin 2000. Grafið hér að neðan sýnir þró­un­ina frá 1997 til 2015...
FréttirFerð til fjár

Hagur heim­il­anna ekki betri síðan fyrir hrun

Margt bendir til þess að hagur heim­il­anna hafi vænkast umtals­vert á síð­asta ári og benda tölu­legar upp­lýs­ingar til að kaup­máttur launa hafi auk­ist, íbúða­verð hækkað, vinnu­afls­notkun hafi auk­ist og atvinnu­leysið minnkað. Greining Íslands­banka fjallar um bætta fjár­hags­stöðu íslenskra heim­ila í dag og segir ljóst að staðan hafi ekki verið betri síðan fyrir hrun banka­kerf­is­ins 2008. Í pósti grein­ing­ar­deild­ar­innar er bent...
Fréttir

Sig­mundur Davíð boðar rann­sókn á stofnun nýju bank­anna

„Þetta er við fyrstu sýn slá­andi,“ sagði Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­sæt­is­ráð­herra, í við­tali við þátt­inn Í bítið á Bylgunni í morgun, þar sem gögn um end­ur­reisn nýju bank­anna og samn­inga við kröfu­hafa voru til umræðu, meðal ann­ars út frá gögnum sem Víglundur Þor­steins­son, fyrr­ver­andi stór eig­andi BM Vallár, hefur aflað sér og sent á Alþingi og fjöl­miðla. Fjallað er um...
Fréttir

Fast­eigna­verð hækkað um 9,6 pró­sent og leigu­verð um 7,5 pró­sent

Vísitala leigu­verðs, sem Þjóðskrá tekur saman, hækk­aði um 7,5 pró­sent á árinu 2014. Á sama tíma hefur vísi­tala fast­eigna­verðs hækkað um 9,6 pró­sent, en í des­em­ber síð­ast­liðnum hækk­aði fast­eigna­verðs­vísi­talan um tvö pró­sent. Fast­eigna­verð hefur hækkað hratt und­an­farin miss­eri, eftir mikla lægð allt frá því í byrjun árs 2008. Spár grein­enda gera ráð fyrir mik­illi hækkun fast­eigna­verðs á næst­unni. Samkvæmt spá...
Fréttir

Kona bæj­ar­stjór­ans ráðin í starf sem flutt var úr ráðu­neyti

Hall­gerður Gunn­ars­dóttir var í síð­ustu viku ráðin í starf lög­fræð­ings á sviði gjaf­sókn­ar­mála hjá sýslu­mann­inum á Vest­ur­landi. Hall­gerður sinnti starf­inu áður hjá sýslu­manns­emb­ætt­inu í Kópavogi, eða þar til starfið var flutt til inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins í fyrra. Um ára­mótin færð­ist staðan svo til sýslu­manns­ins á Vest­ur­landi sem hefur aðsetur í Stykk­is­hólmi, þar sem eig­in­maður Hall­gerðar, Sturla Böðv­ars­son, er bæj­ar­stjóri. Staðan var aug­lýst...
FréttirFerð til fjár

Lága verð­bólgan á Íslandi sú fimmta hæsta í Evrópu

Einungis fimm Evr­ópu­ríki glímdu við hærri verð­bólgu en Ísland á síð­asta ári. Verð­bólgan hér­lendis var þó á svip­uðu róli og í mörgum ríkjum álf­unnar, þar sem verð­lag hefur ýmist lækkað lít­il­lega eða hækkað lít­il­lega. Listinn hér að neðan sýnir verð­bólgu í lönd­unum eins og hún mæld­ist að með­al­tali á síð­asta ári. Í sex löndum mæld­ist verð­hjöðnum, mest í Búlgaríu. Verð­bólga...

Mest lesið undanfarið ár