Flokkur

Fréttaskýringar

Skýring

Hús­næð­is­frum­varp var dregið til baka í lok apríl og ólík­legt að annað komi fram á vor­þingi

Frumvarp Eyglóar Harð­ar­dóttur, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, um stofn­styrki til félags­legra leigu­í­búða var dregið til baka í lok apríl síð­ast­lið­ins og hefur síðan verið í skoðun að setja fram nýtt frum­varp um málið með tals­vert breyttri útfærslu. Þó er ósenni­legt að lokið verði við útfærslu á nýju frum­varpi á þessu þingi. Þetta kemur fram í svari fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans um...
Skýring

Hagnaður bank­anna frá hruni kom­inn í 400 millj­arða króna

Stóru við­skipta­bank­arnir þrír, Arion banki, Íslands­banki og Lands­bank­inn högn­uð­ust sam­tals um 26,7 millj­arða króna á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins í ár. Það er rúmum tíu millj­örðum króna meira en á sama tíma­bili í fyrra. Rúmur helm­ingur þess hagn­aðar varð hjá Arion banka. Þetta kemur fram í upp­gjörum bank­anna þriggja fyrir fyrsta árs­fjórð­ung sem birt voru í þess­ari viku. Alls hafa...
Skýring

Harpa þarf að greiða full fast­eigna­gjöld - Getur það ekki lengur segir for­stjóri húss­ins

Hér­aðs­dómur Reykja­víkur hafn­aði í gær kröfu Hörpu að úrskurður yfir­fast­eigna­mats­nefndar frá 30. maí 2012 verði ógiltur. Samkvæmt úrskurð­inum átti Harpa að greiða 355 millj­ónir króna í fast­eigna­gjöld á árinu 2012. Húsið hefur greitt um einn millj­arð króna í slík gjöld á síð­ustu þremur árum og á að borga yfir 380 millj­ónir króna í þau í ár. Sú álagn­ing, sem gerir...
Skýring

Lög­reglan í Lúx­em­borg yfir­heyrði menn í mars vegna Lindsor-máls­ins

Lög­reglu­yf­ir­völd í Lúx­em­borg yfir­heyrðu menn í tengslum við rann­sókn sína á svoköll­uðu Lindsor-máli í mars síð­ast­liðnum, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans. Þau hafa haft málið til rann­sóknar árum saman. Á meðal þeirra sem yfir­heyrðir voru eru íslenskir rík­is­borg­arar, en ekki hafa feng­ist upp­lýs­ingar um hverjir það voru. Lindsor málið hefur verið lengi til rann­sóknar hjá yfir­völdum á Íslandi og í Lúx­em­borg. Embætti...
Skýring

Íslensk fyr­ir­tæki brjóta skil­mála Facebook til að safna fylgj­endum

Flestir Facebook-not­endur ættu að kann­ast við fra­s­ann „læka, deila og kvitta“. Þannig hvetja ýmis fyr­ir­tæki og vöru­merki Facebook-not­endur til að ger­ast fylgj­endur Facebook-síðna þeirra. Oftast er ein­hver umbun í boði fyrir þessa fríu kynn­ingu fyr­ir­tæk­is­ins á vegg Facebook-not­and­ans, sem fer yfir­leitt í lukku­pott og getur unnið allt milli him­ins og jarðar. Þetta er mark­aðs­setn­ing sem fjöl­mörg íslensk fyr­ir­tæki hafa nýtt...
Skýring

Bournemouth verður minnsta lið úrvals­deildar - Á pari við ævin­týri eftir H.C. Andersen

Bournemouth er ekki knatt­spyrnu­fé­lag sem margir íslenskir knatt­spyrnu­að­dá­endur vita mikið um. Það mun þó ugg­laust breyt­ast á næstu mán­uðum því félagið mun leika í ensku úrvalds­deild­inni á næstu leik­tíð eftir að hafa unnið Championship-deild­ina í ár. Það hafa nokkur „lítil“ lið náð þeim árangri síðan að enska úrvalds­deildin var sett á lagg­irnar árið 1992 og pen­ingar og erlendir leik­menn hófu...
Skýring

Yfirmenn lög­reglu lugu að ráð­herrum

Yfirmenn dönsku leyni­þjón­ust­unnar sögðu for­sætis- og dóms­mála­ráð­herrum lands­ins ósatt um fjöl­margt varð­andi við­brögð lög­regl­unnar eftir hryðju­verkin í Kaup­manna­höfn 14. og 15. febr­úar síð­ast­lið­inn. Þetta kemur fram í skýrslu rann­sókn­ar­nefndar. Yfir­maður leyni­þjón­ust­unnar, PET, til­kynnti um upp­sögn sína klukku­stund áður en skýrslan var gerð opin­ber og hættir 1. júní nk. Mette Frederik­sen dóms­mála­ráð­herra kynnti skýrslu rann­sókn­ar­nefndar lög­regl­unnar á fundi með frétta­mönnum sl....
Skýring

Kaupum föt sem fátækt fólk saumar

Það virð­ist vera ansi víð­tekin skoðun að í fata­fram­leiðslu stór­fyr­ir­tækja í þró­un­ar­löndum felist stór­felld mann­rétt­inda­brot og að okkur beri sið­ferð­is­leg skylda til að sjá til þess að slíkt við­gang­ist ekki. Þetta er vissu­lega rétt, eng­inn með rænu og vott af sið­ferð­is­kennd vill sjá troðið á mann­rétt­indum og það er ekki nokkur vafi á því að margt má, og hrein­lega verður,...
Skýring

Þjóðar­ör­ygg­is­stefna Íslands – Óþörf her- og örygg­i­s­væð­ing eða þarfar ráð­staf­anir?

Nýlega lagði Gunnar Bragi Sveins­son ut­an­rík­is­ráð­herra fyr­ir á Alþingi til­lögu til þings­álykt­un­ar um þjóðarör­ygg­is­stefnu fyr­ir Ísland. Til­lag­an er byggð á skýrslu þing­manna­nefnd­ar, sem Össur Skarp­héð­ins­son þáver­andi utan­rík­is­ráð­herra kom á fót og skipuð var full­trú­um allra flokka sem áttu sæti á Alþingi á síð­asta kjör­tíma­bili. Hér verður ekki gerð tæm­andi grein fyrir inni­haldi til­lög­unnar heldur er athygl­inni beint að því sem...
Skýring

Topp 10: Bestu Eurovi­son lögin

Eurovi­son söngvakeppnin er handan við hornið, en und­an­úr­slitin fara fram 19. og 21. maí og sjálft úrslita­kvöldið er síðan 23. maí í sjálfu höfu­vígi hámenn­ing­ar­tón­list­ar­innar, Vín­ar­borg. Kristinn Haukur Guðnason sagn­fræð­ingur kaf­aði ofan í sögu Eurovi­son og tók saman lista yfir tíu bestu lög keppn­innar frá upp­hafi, að hans mati. L´amour est bleu – Vicky Leandros 1967, Lúx­em­borg, 4. sæti Lúx­em­borg...
Skýring

Aug­lýs­ingar á Strætó valda deilum um tján­ing­ar­frelsi

Aug­lýs­inga­borðar sem birt­ust á dönskum stræt­is­vögnum í lok apríl, og voru fjar­lægðar nokkrum dögum síðar hafa valdið miklum deilum. For­svars­menn stræt­is­vagna­fyr­ir­tæk­is­ins eru sak­aðir um að virða lög um tján­ing­ar­frelsi að vettugi og beygja sig fyrir kvört­unum Ísraela. Félags­skap­ur­inn Dansk-Palen­stínska vin­áttu­fé­lagið, sem var stofnað 1988 til að vekja athygli á mál­efnum íbúa Palest­ínu, lét útbúa aug­lýs­inga­borð­ana sem límdir voru á hliðar...
Skýring

Sjötíu ár frá sigrinum mikla

Sig­ur­dag­ur­inn 9. maí hefur ómælda þýð­ingu fyrir Rússa ár hvert. Minn­ingum um sigra og fórnir Rauða hers­ins í hinu svo­kall­aða „Föð­ur­lands­stríði mikla” á árunum 1941-1945 er þá sér­stak­lega haldið á lofti. Í dag fagna Rússar því að sjö­tíu ár séu liðin frá því að form­lega var til­kynnt um fulln­að­ar­sigur Sov­ét­þjóð­anna og banda­manna þeirra á Þýska­landi Hitlers.Þurftu ekki einu sinni áfengi...

Mest lesið undanfarið ár