Flokkur

Evrópusambandið

Fréttir

Myndband: Ítrekuð loforð formannanna um þjóðar­atkvæða­greiðslu um Evrópu­sambandið

Í kjölfar þess að Gunnar Bragi Sveinsson utan­ríkis­ráðherra tilkynnti Evrópu­sambandinu að ríkis­stjórn hans vilji ekki lengur að Ísland hafi stöðu umsóknar­ríkis að sambandinu hafa margir rifjað upp ýmis ummæli áhrifa­mikilla stjórn­málamanna innan stjórnar­flokkanna tveggja, Sjálfstæðis­flokks og Framsóknar­flokks, um málið. Einn þeirra er Lára Hanna Einars­dóttir sem hefur klippt saman myndband með ítrekuðum skila­boðum stjórn­málamanna úr stjórnar­flokkunum í aðdrag­anda síðustu kosninga...
Fréttir

Bréf Gunnars Braga um að aftur­köllun ESB-umsóknar birt í heild sinni

„Ríkis­stjórn Íslands hefur engin áform um að hefja aðildar­viðræður að nýju. Enn fremur yfirtekur þessi nýja stefna hvers kyns skuld­bindingar af hálfu fyrri ríkis­stjórnar í tengslum við aðildar­viðræður.“ Þetta kemur fram í bréfinu sem Gunnar Bragi Sveinsson utan­ríkis­ráðherra afhenti Edgars Rinkevics, utan­ríkis­ráðherra Lettlands, sem fer með formennsku í Evrópu­sambandinu og sendi samtímis á Johannes Hahn,framkvæmda­stjóra nágranna­stefnu og aðildar­viðræðna sambandsins, í...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Pæling dagsins: Sigmundur fékk afmælis­gjöfina sem hann óskaði sér

Ríkis­stjórninni tókst að koma nánast öllum á óvart þegar hún tilkynnti síðdegis í gær að til stæði að eyða stöðu Íslands sem umsóknar­ríkis að Evrópu­sambandinu. Málið var ákveðið á ríkis­stjórnar­fundi á þriðjudag, kynnt þing­flokkum ríkis­stjórnar­flokkanna í gær og þjóðinni allri, ásamt stjórnar­andstöðu, í sexfréttum RÚV. Út frá almanna­tengsla­fræðum var málið ágætlega afgreitt af hendi ríkis­stjórnarinnar. Allar tíma­setningar virtust vel hannaðar...
Fréttir

Bjarni og Gunnar Bragi árið 2013: ESB-viðræðum ekki slitið án þingsins

Bæði Bjarni Benediktsson fjármála­ráðherra og Gunnar Bragi Sveinsson utan­ríkis­ráðherra sögðu í fjöl­miðlum haustið 2013 að bera ætti slit á aðildar­viðræðum við Evrópu­sambandið undir Alþingi. Haustið 2013 lét Gunnar Bragi taka saman álitsgerð um bindandi áhrif þings­ályktana, vegna ákvörðunar ríkis­stjórnarinnar um að gera hlé á aðildar­viðræðum. Samkvæmt þeirri álitsgerð binda þings­ályktanir stjórn­völd ekki umfram það sem af þingræðis­venju leiðir. Utan­ríkis­ráðherra sagði...
Fréttir

ESB lítur svo á að umsókn hafi ekki verið dregin formlega til baka

Umsókn Íslands um aðild að Evrópu­sambandið hefur ekki verið dregin formlega til baka, segir Maja Kocijanic, talsmaður framkvæmda­stjóra nágrenna­stefnu og aðildar­viðræðna hjá Evrópu­sambandinu. Hún sat fyrir svörum á blaðamanna­fundi framkvæmda­stjórnar ESB í Brussel fyrr í dag. Kocijanic sagði að það væri réttur Íslands að taka sjálf­stæða ákvörðun um málið. Evrópu­sambandið virði slíkar ákvarðanir. Hún sagði jafnframt að Ísland væri ennþá...
Fréttir

Stjórnar­andstaðan sendir ESB bréf og segir ríkis­stjórnina ekki hafa umboð

Stjórnar­andstöðu­flokkarnir á Alþingi hafa sent sameiginlegt bréf til stofnana Evrópu­sambandsins vegna ákvörðunar ríkis­stjórnarinnar um að slíta viðræðum um aðild að Evrópu­sambandinu. Þetta kemur fram í tilkynningu til fjölmiðla. „Á fundi formanna þing­flokka í morgun óskuðu formenn þing­flokka stjórnar­andstöðu­flokkanna eftir því að forseti Alþingis kæmi þeim skýru skila­boðum á framfæri við Evrópu­sambandið að bréf ríkis­stjórnarinnar frá í gær ætti ekki stoð...
Fréttir

Gunnar Bragi gerir athugasemd við ummæli talskonu ESB

Gunnar Bragi Sveinsson utan­ríkis­ráðherra hefur gert athuga­semdir við ummæli talskonu framkvæmda­stjóra nágranna­stefnu og aðildar­viðræðna um bréfið sem hann sendi frá sér í gær. Gunnar Bragi segir í samtali við mbl.is að talskonan Maja Kocijanic hafi ekki farið rétt með og að búið sé að hafa samband við hana vegna þess. Á blaðamanna­fundi framkvæmda­stjórnarinnar fyrr í dag sagði Kocijanic að Ísland...
Fréttir

Bjarni Benediktsson: Ekki ástæða til að leita til Alþingis til að enda umsókn að ESB

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðis­flokksins, segir að það sé ekki ástæða fyrir ríkis­stjórnina að leita til Alþingis til að draga til baka umsókn Íslands að Evrópu­sambandinu þar sem að það sé ekki stefna hennar að ganga í sambandið. Ekki sé því um meiriháttar breytingu að ræða á utan­ríkismála­stefnu Íslands. Það skipti engu máli hvort umsóknin að Evrópu­sambandinu sé dauð eða steindauð....
Fréttir

Búið að boða mótmæli á Austur­velli í kvöld klukkan átta vegna ESB-viðræð­ur­slita

Búið er að boða til mótmæla vegna ákvörðunar ríkis­stjórnarinnar um að binda enda á viðræður við Evrópu­sambandið á Austur­velli klukkan átta í kvöld. Í tilkynningu á Facebook síðu mótmælanna segir: "Ríkis­stjórn Íslands hefur ákveðið að slíta endanlega viðræðum við Evrópu­sambandið og með því kosið að hunsa vilja þjóðarinnar í einu og öllu. Ákvörðunin er tekinn með sérhagsmuni í huga en...

Mest lesið undanfarið ár