Flokkur

Evrópusambandið

Pistill

Kristrún Heimisdóttir lögfræðingur

Ályktanir Alþingis binda utan­ríkis­ráðherra

Þegar Gunnar Bragi Sveinsson tók við embætti utan­ríkis­ráðherra leið ekki á löngu áður en hann skrifaði utan­ríkismála­nefnd Alþingis bréf og lýsti því yfir að hann teldi sig ekki bundinn af ályktun Alþingis um aðildar­umsókn að Evrópu­sambandinu. Þessi nýi skilningur á gildi ályktana Alþingis um utan­ríkismál var óvæntur og átti sér vart fordæmi, hvorki í sögu embættis utan­ríkis­ráðherra frá 1940 og...
Fréttir

Hlæjandi Spánverji orðinn hold­gerv­ingur baráttu um ESB-umsókn á Íslandi

Myndband af eldri manni sem hlær ofsa­fengnum, skærum og fyndnum hlátri í spænskum sjónvarps­þætti er orðið að andlagi barátta andstæðinga og stuðnings­manna aðildar að Evrópu­sambandinu á Íslandi. Vinsælt hefur verið að setja nýjan texta við mynd­bandið og nú hafa bæði stuðnings­menn og helstu andstæðingar Evrópu­sambands­aðildar nýtt sér það til að lítillæka þá sem eru þeim ósammála í netheimum. Í fyrra...
Fréttir

Sjö þúsund mótmæltu: Segja ríkis­stjórnina hafa lítilsvirt lýðræðið og eigi að segja af sér tafar­laust

Um sjö þúsund manns mættu á Austur­völl í dag til að mótmæla ákvörðun ríkis­stjórnarinnar um að slíta aðildar­viðræðum við Evrópu­sambandið. Gunnar Bragi Sveinsson utan­ríkis­ráðherra sendi bréf þess efnis til sambandsins síðastliðinn fimmtudag. Ákvörðunin var ekki tekin fyrir á Alþingi né borin undir utan­ríkismála­nefnd. Í yfir­lýsingu sem skipu­leggj­endur fundarins sendu frá sér segir: "Ríkis­stjórn Íslands lætur sér vestrænar lýðræðis­hefðir í léttu...
Fréttir

Gunnar Bragi líkir bréfi stjórnar­andstöðu til ESB við valdarán

Gunnar Bragi Sveinsson utan­ríkis­ráðherra segir að ástæða þess að hann valdi að leggja ekki fram aðra þings­ályktunar­tillögu um slit á viðræðum við Evrópu­sambandið vera þá að tillagan sem hann lagði fram fyrir um ári hafi verið tekin „í gíslingu“ á Alþingi Íslendinga. Þetta kom fram í viðtali við Gunnar Braga í fréttum Stöðvar 2 í kvöld. Þess í stað sendi...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Pæling dagsins: Aðal­samninga­maðurinn í utan­ríkis­ráðuneytinu

Ákvörðun Gunnars Braga Sveins­sonar utan­ríkis­ráðherra um að tilkynna Evrópu­sambandinu að Ísland sé ekki lengur umsóknar­ríki að sambandinu hefur vart farið fram hjá neinum. Mikið er rætt um hvort það standist að taka svona ákvörðun án þess að fara með hana í gegnum Alþingi og án samráðs við utan­ríkismála­nefnd, sem lög segja að verði að vera með í ráðum þegar meiriháttar...
Fréttir

Fyrr­verandi formenn stjórnar­flokka gagnrýna ríkis­stjórnina harðlega

Fyrr­verandi formenn Sjálfstæðis­flokksins og Framsóknar­flokksins hafa í dag gagnrýnt aðgerðir ríkis­stjórnarinnar í ESB-málinu harðlega. Þorsteinn Pálsson og Valgerður Sverris­dóttir skrifa bæði pistla á vefsíðu Hringbrautar um málið. „Ráðherrar geta ekki breytt ákvörðunum Alþingis. Það er andstætt stjórnar­skrá lýðveldisins,“ skrifar Þorsteinn. Hann segir tilkynningu Gunnars Braga Sveins­sonar utan­ríkis­ráðherra vera gerræði og auglýsingu á því hvernig hann „lítilsvirðir löggjafar­samkomu þjóðar sinnar.“ Þorsteinn...

Mest lesið undanfarið ár