Flokkur

Evrópusambandið

Fréttir

Tillaga um þjóðar­atkvæða­greiðslu um ESB verður lögð fram

Þings­ályktunar­tillaga um þjóðar­atkvæða­greiðslu um Evrópu­sambandið verður lögð fram á þessu kjör­tímabili. „Þetta er orðað þannig í stjórnar­sáttmálanum að „komi fram“. Það er eins og þarna sé einhver mistería um hvort einhverjum detti það í hug. Ég get þá bara upplýst það hér og nú að hún mun koma fram,“ segir Jón Steindór Valdimarsson, þingmaður Viðreisnar. Þetta sagði Jón Steindór í...
Fréttir

Segir þjóðar­atkvæði ekki í hag eða anda Sjálfstæðis­flokksins

Það væri ekki í hag Sjálfstæðis­flokksins og ekki í anda stefnu flokksins ef hann myndi samþykkja að farið verði í þjóðar­atkvæða­greiðslu um Evrópu­sambandið. Þetta segir Gunnlaugur Snær Ólafsson, formaður utan­ríkismála­nefndar Sjálfstæðis­flokksins við mbl.is. Afstaða flokks­manna og kjósenda hans „hefur alfarið verið á þá leið að þeir hafa engan áhuga á þessu.“ Í morgun var sagt frá því í Frétta­blaðinu að...
Erlent

ESB gæti krafið UKIP um endur­greiðslu tuga milljóna

Breski sjálfstæðis­flokkurinn UKIP verður að öllum líkindum beðinn um að endur­greiða Evrópu­sambandinu 173 þúsund evrur, sem samsvarar tæplega 21 milljón króna, sem flokkurinn fékk í styrki frá sambandinu. Til viðbótar við það mun flokkurinn ekki fá ríflega 500 þúsund evra styrk sem hann átti von á. Ástæðan er sú að flokkurinn er sakaður um að hafa misnotað almannafé. Guardian greinir...
Erlent

Engin útganga úr ESB án aðkomu þingsins

Breska ríkis­stjórnin getur ekki virkjað ákvæði um úrsögn Bretlands úr Evrópu­sambandinu nema með samþykki breska þingsins. Þetta er niður­staða dómstóls í Bretlandi. Stjórn­völd hyggjast áfrýja niður­stöðunni, og er niður­stöðu Hæstaréttar vænst í desember, að því er breska ríkis­útvarpið BBC greinir frá. Theresa May, forsætis­ráðherra Bretlands, hefur sagt að þjóðar­atkvæða­greiðslan og ráðherra­völd þýði að þingmenn þurfi ekki að kjósa um málið....
Viðtal

Gefum gömlu strákunum frí

Hún lætur sem hún viti ekki af því að hún hafi komist á eftirlauna­aldur fyrir nokkrum árum og gegnir enn þá tveimur störfum, rétt eins og hún hefur gert alla ævi. Eva Joly – eða Gro eins og hennar nánustu kalla hana – berst gegn skatta­undanskotum auðmanna og stór­fyrirtækja, bæði sem þingmaður á Evrópu­þinginu og lögmaður. Hún segir nauðsynlegt að almenningur geri sér grein fyrir að hann eigi í stríði gegn spillingu.

12 mín. lestur

Fréttir

Björt framtíð vill þjóðar­atkvæði um ESB samhliða kosningum

Þing­flokkur Bjartrar framtíðar vill að kosið verði um áframhald á aðildar­viðræðum Íslands við Evrópu­sambandið samhliða þing­kosningum í lok október. Flokkurinn lagði fram þings­ályktunar­tillögu þess efnis á Alþingi í dag. Páll Valur Björnsson þingmaður er fyrsti flutnings­maður tillög­unnar en allur þing­flokkurinn flytur tillöguna í sameiningu. Samskonar tillaga var lögð fram á siðasta löggjafar­þingi, en aðeins dagsetn­ing­unni hefur verið breytt. „Alþingi ályktar...

Mest lesið undanfarið ár