Flokkur

Erlent

Greining

Upprisa Kims og fæðing fals­fréttar

Fjöl­miðlar um allan heim hafa greint frá því undan­farið að leiðtogi Norður-Kóreu væri alvarlega veikur og hefði jafnvel látist eftir misheppnaða hjarta­skurðaðgerð. Sú frétt virðist hafa verið uppspuni frá rótum og má auðveldlega rekja hana til áróðurs­miðla á vegum bandarískra yfirvalda. Sú er einnig raunin þegar kemur að fjölda annarra furðu­frétta af hinu einangraða ríki Norður-Kóreu, sem margar eru skáldaðar í áróðurs­skyni.
ErlentCovid-19

28 virkum dögum seinna

Vaxandi hópur Bandaríkja­manna tekur þátt í mótmælum gegn samkomu­banni og öðrum fyrir­byggjandi aðgerðum vegna kóróna­veirunnar. Þeir virðast njóta stuðnings Donalds Trump forseta og er hann sakaður um að hvetja til uppreisnar í ríkjum þar sem Demó­kratar eru við völd. Trump er mikið í mun að koma hagkerfinu aftur í gang fyrir komandi kosninga­baráttu, þrátt fyrir gríðarlegt og hratt vaxandi mannfall af völdum veirunnar vestanhafs.

Mest lesið undanfarið ár