Flokkur

Erlent

Erlent

Þýska öfga­hægrið missir flugið

Stuðningur við þýska hægri öfga­flokkinn Alternative für Deutschland, AfD, virðist fara dvínandi samkvæmt nýlegum skoðana­könnunum í Þýska­landi. Meðlimir flokksins hafa meðal annars talað fyrir því að flótta­menn séu skotnir á landa­mærunum, gegn fóstur­eyðingum og kynfræðslu barna, og sagt að íslam samræmist ekki stjórnar­skránni. Eftir að hafa fagnað sigri síðastliðið haust mælist flokkurinn nú aðeins með 8,5 prósent fylgi.
Erlent

Una heimsótti spítala þar sem 30 voru myrtir í dag

Í síðustu viku heimsótti Una Sighvats­dóttir hersjúkrahús í Kabúl til þess að ræða við kvenlækna sem leggja líf sitt í hættu með því að ákveða að mæta í vinnu og skóla á hverjum degi. Viðtal sem hún tók við kvenlækni þar birtist í morgun, í tilefni af alþjóð­legum baráttu­degi kvenna. Skömmu síðar var sjálfsmorðs­árás framin á sjúkra­húsinu og að minnsta kosti þrjátíu drepnir. Hryðjuverka­samtökin ISIS hafa lýst ábyrgð á árásinni.

Mest lesið undanfarið ár