Flokkur

Erlent

Erlent

Engin tveggja ríkja lausn?

Allar tilraunir til að stilla til friðar fyrir botni Miðjarðar­hafs síðustu áratugi hafa gert ráð fyrir stofnun sjálf­stæðs ríkis Palestínu­manna á Vestur­bakkanum og Gaza en þær tilraunir hafa líka allar mistekist hrapal­lega. Ísraelar hafa með skipulögðum hætti grafið undan öllum grund­velli fyrir slíku ríki en sumir fræðimenn telja víst að með því hafi þeir um leið gert út af við framtíð Ísraels sem ríki Gyðinga.
Erlent

Endurkoma sósíal­ískra stjórn­mála í Banda­ríkjunum

Sósíalismi er skyndi­lega á allra vörum í bandarískum stjórn­málum, þökk sé forseta­framboði Bernie Sanders 2016, en þó ekki síst Alexandríu Ocasio-Cortez sem skaust upp á stjörnu­himin bandarískra stjórn­mála í kjölfar sigurs hennar á fram­bjóðanda flokks­eigenda­félags Demókrata­flokksins í prófkjöri flokksins í fyrra­sumar og svo öruggs sigurs í þing­kosningunum í nóvember. Ocasio-Cortez, sem er oft einfald­lega kölluð AOC í bandarískri stjórnmála­umræðu, er yngsta konan sem hefur náð kjöri á Banda­ríkjaþing, hefur sett hugmyndir á dagskrá sem þóttu fjarstæðu­kennd róttækni fyrir örfáum árum.

13 mín. lestur

Erlent

Forsætis­ráðherra: Vinstri­flokkar í Evrópu verða að brjóta öfga­hægrið á bak aftur og sameinast um róttækar lausnir

Katrín Jakobs­dóttir forsætis­ráðherra segir að efnahags­stefna Evrópu­sambandsins og lýðræðis­hallinn innan þess hafi grafið undan stuðningi við Evrópu­samrunann. Þetta hafi fært öfga­hægriöflum, útlendinga­höturum og valdboðs­sinnum vopn í hendur. Nú verði evrópskar vinstri­hreyfingar að sameina krafta sína og bjóða almenningi upp á róttækar lausnir í anda lýðræðis, mann­réttinda, umhverfis­verndar og félags­legs réttlætis.

Mest lesið undanfarið ár