Flokkur

Erlent

GreiningStríðið í Sýrlandi

Rýtingur í bak Kúrda leiðir til loka­uppgjörs í Sýrlandi

Bandaríkja­stjórn sveik sína nánustu bandamenn gegn ISIS á dögunum með því að gefa Tyrkjum skotleyfi á varnar­sveitir Kúrda í Sýrlandi. Erdoğan Tyrklands­forseti er hins vegar kominn í stórkostleg vandræði og innrás hans er í uppnámi eftir að Kúrdar ventu kvæði sínu í kross og gerðu bandalag við Rússa og sýrlenska stjórnar­herinn. Um leið og Banda­ríkjaher er að hverfa á brott frá landinu virðist allt stefna í loka­uppgjör í borgara­stríðinu sem hefur geisað í átta ár.
Greining

Komið að skulda­dögum fyrir Trump?

Öll spjót standa á Donald Trump Bandaríkja­forseta nú þegar þingið hefur hafið rannsókn á hvort hann hafi gerst brotlegur í starfi. Ljóst er að meirihluti er fyrir því í fulltrúa­deild þingsins að ákæra forsetann, enda virðist borð­leggjandi mál að hann misnotaði embætti sitt til að þrýsta á stjórn­völd í Úkraínu að rannsaka Joe Biden, sinn helsta stjórnmála­andstæðing. Um leið sætir Rudy Guiliani, einka­lögfræðingur Trumps, sjálfur sakamála­rannsókn og tveir dular­fullir aðstoðar­menn hans hafa verið hand­teknir fyrir að bera erlent fé á forsetann.

12 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár