Flokkur

Dómsmál

FréttirSamherjaskjölin

Mörg ár liðu þar til ákært var í málum sem líkj­ast Sam­herj­a­mál­inu í Namibíu

Tvö af þekkt­ustu málum Sví­þjóðar þar sem mútu­greiðslur í öðrum löndum voru rann­sökuð í fimm og átta ár áður en. ákærur voru gefnar út í þeim. Í báðum til­fellum höfðu fyr­ir­tækin við­ur­kennt að hafa mútað áhrifa­mönnum í Úsbekistan og Djibouti. Ólafur Hauksson hér­aðs­sak­sókn­ari segir ómögu­legt að full­yrða hvenær rann­sókn Sam­herj­a­máls­ins í Namibíu muni ljúka.
FréttirSamherjaskjölin

Yfirvöld í Namibíu halda áfram að reyna að fá þrjá Sam­herj­a­menn fram­selda

Yfirvöld í Namibíu segj­ast eiga í nánum sam­skiptum við íslensk yfir­völd um að fá þrjá Sam­herj­a­menn fram­seld. Embætti rík­is­sak­sókn­ara á Íslandi hefur verið skýrt með að eng­inn Íslend­ingur verði fram­seldur til Namibíu. Yfi­ir­völd í Namibíu vilja mögu­lega að réttað verði yfir Sam­herj­a­mönnum á Íslandi gangi fram­sal ekki eftir.
FréttirSamherjaskjölin

Ákæru­valdið í Namibíu vill fá tvo Sam­herj­a­menn fram­selda

Ákæru­valdið í Namibíu sagð­ist fyrir dómi í morgun vinna að því að fá Aðal­stein Helgason og Egil Helga Árnason fram­selda til Namibíu. Embætti rík­is­sak­sókn­ara á Íslandi hefur hins vegar sagt að Ísland fram­selji ekki rík­is­borg­ara sína til Namibíu. Rétt­ar­höld­unum yfir sak­born­ing­unum í Sam­herj­a­mál­inu hefur verið frestað til 20. maí.
FréttirMorð í Rauðagerði

Verjandi í sam­skiptum við aðra sak­born­inga fyrir og eftir morðið

Stein­bergur Finn­boga­son, fyrr­ver­andi verj­andi Antons Kristins Þór­ar­ins­sonar sem var færður í gæslu­varð­hald vegna rann­sóknar á morði í Rauða­gerði, var sam­kvæmt fjar­skipta­gögnum lög­reglu í sam­skiptum við aðra sak­born­inga í mál­inu fyrir og eftir að morðið var framið. Vegna þessa hefur hann verið kvaddur til skýrslu­töku í mál­inu og getur því ekki sinnt stöðu verj­anda. Stein­bergur hefur áður verið tal­inn af lög­reglu rjúfa mörk verj­anda og aðila.

16 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár