Flokkur

Aflandsfélög

Greinar

Panama-skjölin: Milljarðaslóð Jóns Ásgeirs og Ingibjargar rakin í skattaskjól
Afhjúpun

Panama-skjölin: Millj­arða­slóð Jóns Ásgeirs og Ingi­bjargar rakin í skatta­skjól

Panama-skjölin sýna að Jón Ásgeir Jóhann­es­son á og teng­ist miklum eignum í skatta­skjólum þrátt fyrir að hann hafi neitað því í gegnum árin. Þau sýna umfangs­mikil við­skipti Ingi­bjargar Pálma­dóttur, fjár­festis og aðal­eig­anda fjöl­miðla­fyr­ir­tæk­is­ins 365, og Jóns Ásgeirs Jóhann­es­sonar í félögum í skatta­skjólum heims­ins. Ingi­björg er skráður eig­andi félags­ins Guru Invest í Panama sem borg­aði upp skuldir upp á 2,4 millj­arða við Glitni og Jón Ásgeir er eig­andi Jovita Inc. í Panama meðal ann­ars.
Panamaskjölin: Karl Wernersson stofnaði félag hjá Mossack Fonseca sem tók við milljörðum frá Íslandi
FréttirPanamaskjölin

Panama­skjölin: Karl Wernersson stofn­aði félag hjá Mossack Fonseca sem tók við millj­örðum frá Íslandi

Karl Wernersson not­aði félag á Seychelles-eyjum til að taka við arði, lána pen­inga og fá lán frá Íslandi. Leiftri ltd. tók meðal ann­ars við tæp­lega þriggja millj­arða láni frá Milestone sem aldrei fékkst greitt til baka. Karl segir að Leiftri hafi tapað öllu sínu í hrun­inu. Panama­skjölin sýna að félagið var lagt niður árið 2012 skömmu eftir að það afskrif­aði millj­arðs króna skuld móð­ur­fé­lags lyfja­versl­un­ar­innar Lyfja og heilsu á Íslandi.

Mest lesið undanfarið ár