Kvika streymir upp á yfirborðið við Fagradalsfjall – Eldgos hafið á ný

Eldgos er hafið á Reykja­nesi á ný. Kvika sést streyma upp úr jörð­inni á vef­mynda­vélum sem bæði RÚV og mbl.is eru með stað­settar við Fagra­dals­fjall.

Á myndavél RÚV, sem sögð er vera staðsett á Langahrygg, sést að eldgos er hafið við Fagradalsfjall.
Á mynda­vél RÚV, sem sögð er vera stað­sett á Langa­hrygg, sést að eld­gos er hafið við Fagra­dals­fjall. Mynd: Skjáskot/RÚV

Eldgos er hafið á Reykja­nesskaga á ný. Kvika þrýst­ist nú upp á yfir­borðið á sprungu sem stað­sett er innan hrauns­ins sem rann í síð­asta gosi.

Samkvæmt til­kynn­ingu frá Veð­ur­stof­unni er gossprungan í vest­an­verðum Mer­ar­dölum, um 1,5 kíló­metra norður af Stóra-Hrút. Veð­ur­stofan segir að miðað við vef­mynda­vélar hafi kvika fyrst brotið sér leið upp á yfir­borð kl. 13:18. Gas berst frá jarð­eld­inum.

Almanna­varnir biðja fólk um að fara með gát og forð­ast að vera á svæð­inu, en vís­inda­fólk er á leið­inni á stað­inn með þyrlu Land­helg­is­gæsl­unnar til þess að leggja mat á stöð­una.

Mikil skjálfta­virkni hefur verið í kringum Fagra­dals­fjall und­an­farna daga og í morgun sagði Veð­ur­stofan að um tíu þús­und jarð­skjálftar hefðu mælst á svæð­inu frá því á laug­ar­dag.

Glögg­lega má sjá hraun renna á vef­mynda­vélum sem Rík­is­út­varpið og mbl.is halda úti á svæð­inu.

Fyrra eld­gosið í Geld­inga­dölum hófst 19. mars í fyrra, eftir jarð­skjálfta­hr­inu sem staðið hafði í meira en þrjár vikur. Þá voru næstum 800 ár frá síð­asta eld­gosi á Reykja­nesskag­anum.

Hraun­flæði frá gígnum í Geld­inga­dölum hætti 18. sept­em­ber í fyrra, eftir að gosið hafði staðið í um hálft ár. Flat­ar­mál hrauns­ins sem rann varð um 5 fer­kíló­metrar. Fyrra gos­inu lauk form­lega þann 18. des­em­ber 2021, en þá voru þrír mán­uðir liðnir frá síð­asta hraun­flæði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár