Fanney Rós skipuð ríkislögmaður

For­sæt­is­ráð­herra skip­aði Fanneyju Rós Þor­steins­dóttur í emb­ætti rík­is­lög­manns frá og með næstu viku, fyrst kvenna. Fanney Rós var eini umsækj­and­inn.

Fanney Rós Þor­steins­dóttir hefur verið skipuð rík­is­lög­maður frá og með 28. febr­úar næst­kom­andi. Fanney er fyrsta konan sem er skipuð í emb­ættið, en hún var einnig eini umsækj­and­inn. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu frá Stjórn­ar­ráð­inu.

Samkvæmt til­kynn­ing­unni sóttu upp­haf­lega tveir um emb­ættið, en annar þeirra dró svo umsókn sína til baka eftir að for­sæt­is­ráð­herra fól ráð­gef­andi hæfn­is­nefnd að leggja mat á hæfni þeirra. Umsóknin var dregin til baka áður en nefndin tók til starfa, en hún mat það svo að Fanney Rós upp­fyllti öll hæfis- og hæfn­is­skil­yrði.

Fanney Rós lauk emb­ætt­is­prófi frá laga­deild Háskóla Íslands í júní 2005 og fram­halds­námi (LLM) við Columbia-háskóla 2012. Hún hefur starfað hjá emb­ætti rík­is­lög­manns frá árinu 2012 en áður var hún aðstoð­ar­maður hæsta­rétt­ar­dóm­ara, full­trúi hjá Mörkinni lög­manns­stofu og rit­ari kæru­nefndar útboðs­mála. [adspot]

Þá var hún um skeið stunda­kenn­ari við laga­deild Háskól­ans í Reykja­vík. Fanney Rós hlaut rétt­indi til mál­flutn­ings fyrir hér­aðs­dómi 2006 og fyrir Hæsta­rétti 2014.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár