Bíldekk menga meira en útblástur – samkvæmt nýrri rannsókn

Eftir því sem þyngri bílum fjölgar verður mengun frá bíldekkjum nærri tvö þús­und sinnum meiri en mengun vegna útblást­urs, sam­kvæmt nýrri rann­sókn. Mengun af þessu tagi gæti brátt orðið mikil áskorun fyrir lög­gjafa.

Mengun af völdum rykagna sem losna af dekkjum við akstur verður gæti von bráðar orðið áskorun fyrir löggjafa
Mengun af völdum rykagna sem losna af dekkjum við akstur verður gæti von bráðar orðið áskorun fyrir lög­gjafa Mynd: EPA

Bildekk menga tvö þús­und sinnum meira en sem nemur loft­mengun frá útblæstri meðal bíls. Þetta er meðal þess sem fram kemur í rann­sókn Emission Analytics, óháðs rann­sókn­ar­fyr­ir­tækis sem er leið­andi í rann­sóknum á útblæstri.

Rykagnir sem losna af bíldekkjum við akstur inni­halda líf­ræn meng­andi efni auk krabba­meins­vald­andi efna. Sér­fræð­ingar telja að mengun af þessum völdum verði von bráðar að áskorun fyrir lög­gjafa, að því er segir í umfjöllun The Guardian um rann­sókn­ina.

Loft­mengun veldur millj­ónum ótíma­bærra dauðs­falla á heims­vísu. Í takt við aukna umhverf­is­vit­und hefur þrýst­ingur á bíla­fram­leið­endur auk­ist, meðal ann­ars með þeim afleið­ingum að útblástur frá nýjum bílum í þró­uðum ríkjum er nú mun minni í nýjum bílum. Í Evrópu mælist útblástur nýrra bíla til að mynda vel undir lög­legum mörkum.

En nýjar áskor­anir blasa við. Þyngd bíla.

Aukin þyngd nýrra bíla, ekki síst raf­bíla, leiðir til þess að rykagnir af bíldekkjum menga meira en áður.

Dekk að taka við af púströrum sem helsti mengunarvaldur

„Dekk eru óðum að taka við af púströrum sem helsta meng­un­ar­valdur bíla,“ segir Nick Molden, stofn­andi og fram­kvæmda­stjóri Emission Analytics, sem fram­kvæmdi rann­sókn­ina. „Púströr eru svo hrein, ef við værum að byrja frá grunni í dag tæki ekki að reglu­væða þau,“ segir Molden.

Smæð rykagn­anna gerir það að verkum að mengun af völdum þeirra sé jafn­vel skað­legri en mengun af völdum útblást­urs. Í rann­sókn­inni kemur fram að rykagn­irnar megi finna í 250 mis­mun­andi teg­undum dekkja, sem eru öllu jafna fram­leidd úr gúmmíi sem unnið er úr hrá­olíu.

Agnirnar eru sem fyrr segir agn­arsmáar, en fram kemur í rann­sókn­inni að við hvern keyrðan kíló­metra verður til yfir eitt tonn af rykögnum, sem þýðir að agn­irnar eru innan við 23 nanó­metrar og geta, smæð­ar­innar vegna, kom­ist inn í blóð­rás fólks og þaðan í líf­færi.

Rykagnir smærri en 23 nanó­metrar er erfitt að mæla og engar reglur hafa verið inn­leiddar um losun svo smárra rykagna og efnin sem þau inni­halda í Evrópu eða Banda­ríkj­unum.

Í rann­sókn­inni kemur fram að fyrir hvern keyrðan kíló­meter losna að með­al­tali 0,02 millígrömm út í and­rúms­loftið í formi útblást­urs. Ef tekið er til­lit til dekkja bíls­ins losna 73 millígrömm af rykögnum í and­rúmslof­rið á hverjum kíló­metra. Ef dekkin eru notuð er magnið tals­vert lægra, eða 36,5 millígrömm á hvern kíló­metra. Það er samt sem áður 1.850 sinnum meira en meðal losun við útblástur.

Snýst ekki um að hætta að keyra

Fyrsta skrefið til að draga úr meng­un­inni, að mati Molden, er að hætta notkun á dekkj­unum sem menga mest. „Þetta snýst ekki um að fólk hætti að keyra eða að finna upp nýja teg­und af dekkjum. Ef við getum úti­lokað verri helm­ing­inn er hægt að breyta miklu. En eins og staðan er núna er ekk­ert reglu­verk, það er ekk­ert eft­ir­lit,“ segir hann.

[links]Þyngd bíl­anna skiptir einnig máli en alþjóð­lega þró­unin síð­ustu ár hefur verið sú að þyngri bílum er að fjölga. Þannig voru nýskráðir bílar á Íslandi í fyrra að með­al­tali 50 pró­sentum þyngri en bíl­arnir voru árið 1990.

Umræða hefur átt sér stað nýverið hvort raf­bílar, sem eru þyngri en hefð­bundnir bílar, geti leitt til að auk­innar meng­unar af völdum rykagna í dekkjum. Molden segir að það fari eftir akst­urs­lagi, þannig geti raf­bíll sem ekið er gæti­lega fram­leitt færri rykagnir en bílar sem ganga fyrir jarð­efna­elds­neyti sem ekið er með offorsi.

Doktor James Tate, rann­sakndi í sam­göngu­fræðum við Háskól­ann í Leeds, segir aða taka beri nið­ur­stöðum rann­sókn­ar­innar alvar­lega en hann bendir á að raf­bílar komi til með að verða létt­ari á næst­unni. „Í kringum 2024-2025 má búast við því að raf­bílar og bílar sem ganga fyrir jarð­efna­elds­neyti verði jafn þungir. Aðeins lúx­usraf­bílar af stærri gerð­inni með lang­dræg­ari raf­hlöðu verða þyngri,“ segir Tate.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár