Útlendingar eru uppistaðan af verkalýðnum á Íslandi

Tobiasz Grzempowski kom hingað til lands frá Póllandi í leit að bættum kjörum. Það hefur gengið upp og ofan. Vill að gerðar séu breyt­ingar á því hvernig auðnum er útdeilt milli fólks.

„Ég kom hingað til að leita að betri kjörum, ég átti vini hér sem að hvöttu mig til að koma hingað til lands. Það hefur hins vegar gengið upp og niður, svo ekki sé meira sagt,“ segir Tobiasz Grzempowski Tobiasz, sem er fæddur í Póllandi en hefur búið hér á landi í um níu mán­uði. Hingað kom hann þó frá Englandi.

„Ég hef sann­ar­lega fundið fyrir stétta­skipt­ing­unni og mis­skipt­ing­unni í íslensku sam­fé­lagi síðan ég kom hingað til lands. En það er líka mikil stétta­skipt­ing milli Íslend­inga og útlend­inga hér. Það á við um aðgang að atvinnu til að mynda, fyrir útlend­inga er mjög erfitt að fá vinnu sem hæfir menntun þeirra hér á landi og að sama skapi er erfitt að klifra upp met­orða­stig­ann í fyr­ir­tækjum. Hið sama á við um heil­brigð­is­þjón­ust­una og félags­þjón­ust­una, það er erf­ið­ara fyrir útlend­inga að kom­ast þar að. Miðað við þann fjölda útlend­inga sem …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár