Helga Vala að hætta á þingi – Hefur ekkert með Kristrúnu að gera

Helga Vala Helga­dóttir, odd­viti Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður, er að hætta þing­mennsku og snúa sér að lög­fræði­störfum. Hún segir að þótt það „sé vin­sælt að teikna upp þá mynd að tvær konur geti ekki verið saman í her­bergi“ þá hafi brott­för hennar ekk­ert með Kristrúnu Frosta­dóttur að gera.

Að hætta
Að hætta Helga Vala Helga­dóttir hefur setið á þingi frá árinu 2017. Mynd: Bára Huld Beck

Helga Vala Helga­dóttir, sem setið hefur á þingi fyrir Sam­fylk­ing­una síðan 2017, er að hætta þing­mennsku. Hún ætlar að helga sig lög­manns­störfum og hefur virkjað lög­manns­rétt­indi sín á ný. 

Í við­tali við Morg­un­blaðið sem birt­ist í dag seg­ist Helga Vala þó ekki vera að fara úr Sam­fylk­ing­unni, sem mæld­ist með 28,7 pró­sent fylgi í síð­ustu könnun Gallup og hefur ekki verið mæld með við­líka stuðn­ing síðan á vor­mán­uðum árs­ins 2009. Ef fer sem horfir mun flokk­ur­inn, sem hefur mælst stærsti flokkur lands­ins allt þetta ár, verða í góðri stöðu til að sitja í næstu rík­is­stjórn. 

Helga Vala segir að útganga hennar snú­ist ekk­ert um Kristrúnu Frosta­dóttur, sem tók við sem for­maður flokks­ins í fyrra. „Þótt það sé vin­sælt að teikna upp þá mynd að tvær konur geti ekki verið saman í her­bergi, þá er það bara ekki rétt og brott­för mín hefur ekk­ert með hana að gera.“

Væri búin að skipta um flokk ef hún ætlaði sér það

Helga Vala bauð sig fram til vara­for­manns Sam­fylk­ing­ar­innar árið 2020 gegn Heiðu Björgu Hilm­is­dóttur, en tap­aði þeim slag. Hún leiddi svo lista Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður í kosn­ing­unum  2021 og var gerð að þing­flokks­for­manni í kjöl­farið. Sú staða breytt­ist í fyrra­haust, eftir að Kristrún Frosta­dóttir varð for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Kristrún ákvað að skipta um for­mann þing­flokks og setja Loga Ein­ars­son, fyr­ir­renn­ara hennar á for­manns­stóli, í starfið en því fylgir meiri ábyrgð, áhrif og hærri laun. 

Helga Vala segir að ef hún ætl­aði sér að skipta um flokk þá væri hún búinn að því. Tilboð þess efnis hefðu þegar borist. „Það gerð­ist þarna síð­asta haust þegar mér var skipt út sem þing­flokks­for­manni, þá héldu sumir að ég væri komin í svo mikla fýlu að ég væri á leið úr flokknum. En ég er ekki þar. Ég er ekki í póli­tík fyrir mig og mína hatta.“ 

Jóhann Páll Jóhanns­son, sem var í öðru sæti á lista Sam­fylk­ing­ar­innar í kjör­dæmi Helgu Völu, náði inn á þing í síð­ustu kosn­ingum. Fyrsti vara­þing­maður kjör­dæm­is­ins, sem ætti að taka við af Helgu Völu, er Dagbjört Hákon­ar­dóttir.

Lítill stóriðjukrati

Í við­tal­inu við Morg­un­blað­inu er Helga Vala spurð um sögur um að hún og Kristrún ættu ekki skap saman og gætu ekki unnið saman. Hún seg­ist hafa heyrt þetta allt. „Fyrst átti þetta að vera milli hennar og Oddnýjar [G. Harð­ar­dóttur], en svo heyrði ég ein­hvern tala um að vinnu­staða­sál­fræð­ingur hefði komið til aðstoðar vegna þess að mér og Kristrúnu kæmi ekki saman. Mér var a.m.k. ekki boðið í það partí og það hefur engum dottið í hug að spyrja mig hvort það væri fótur fyrir þess­ari sögu.“ 

Hún gengst þó við því að vera ekki sam­mála Kristrúnu um allt. „Það er ekk­ert leynd­ar­mál að ég er mik­ill Evr­ópusinni og lít­ill stór­iðju­krati. Og mitt erindi í póli­tík er mann­rétt­indi, rétt­indi fólks, jöfn­uður. Þau mann­rétt­indi geta verið efna­hags­leg, náð til kynja, kyn­þátta, kyn­slóða … þess vegna steig ég inn.“

Kjósa
27
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Hlynur Vilhjálmsson skrifaði
    Það segir mest að öfgahægrifasistarnir eru á móti henni. Þá hefur hún gert góða hluti og megum við styðja hana fyrir það.
    0
  • Eftirsjá að henni, klárlega.
    6
  • Anna Bjarnadóttir skrifaði
    Það verður mikil eftirsjá í Helgu Völu. Slæmt að missa svo ötula baráttukonu mannréttinda út af Alþingi.
    6
  • GKÞ
    Guðni Kr. Þorvaldsson skrifaði
    Hvernig stendur á því að það fólk sem hefur eitthvað vit í hausnum yfirgefur oftast Alþingi mjög fljótlega, mikill missir af Helgu Völu, hugrekkið heiðarleikinn og manngæsku minnkar helling á Alþingi við að hún yfirgefur
    6
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár