Óásættanlegt að þjóðkirkjuprestur hafi brotið á konum

Biskup Íslands og tveir vígslu­bisk­upar hafa sent frá sé yfir­lýs­ingu þar sem þau harma brot fyrr­ver­andi sókn­ar­prests gagn­vart konum. Prest­inum var meðal ann­ars gefið að hafa sleikt eyrna­snepla konu sem vann með honum.

Agnes M. Sigurðardóttir er biskup Íslands.
Agnes M. Sig­urð­ar­dóttir er biskup Íslands. Mynd: Birgir Þór Harðarson

„Það er óásætt­an­legt að prest­ur­inn hafi brotið sið­ferði­lega á kon­unum meðan hann var þjón­andi prestur í Þjóð­kirkj­unni og í sam­skiptum við þær. Það er einnig sárt að þolendum hefur þótt skorta á að hlustað hafi verið á þær eða ekki fylgst með líðan þeirra af hálfu yfir­stjórnar kirkj­unnar á þeirri leið sem þær þurftu að ganga.“

Þetta er meðal þess sem fram kemur í yfir­lýs­ingu sem Agnes M. Sig­urð­ar­dóttir, biskup Íslands, og vígslu­bisk­up­arnir í Skál­holti og á Hólum, hafa sent till fimm þolenda sókn­ar­prests­ins Ólafs Jóhanns­sonar. Þar er, fyrir hönd þjóð­kirkj­unnar, harmað að brot hans hafi átt sér stað og að kon­urnar hafi þurft að líða fyrir sið­ferð­is­brot af hans hálfu um ára­bil. [adspot]Þau sem skrifa undir yfir­lýs­ing­una segj­ast trúa frá­sögnum kvenn­anna og telji það ólíð­andi að per­sónu­leg mörk hafi ekki verið virt, þar með virð­ing fyrir til­finn­ingum og einka­lífi þeirra. „Okkur þykir afar sárt að kon­urnar, sem komu fram, hafi þurft að ganga í gegnum þá eldraun að verja sín eigin mörk og sið­ferð­is­kennd á opin­berum vett­vangi með kærum og öðrum opin­berum hætti. Per­sónu­leg mörk eiga með réttu að vera tryggð í siða­reglum Þjóð­kirkj­unnar og með skýrum reglum um við­brögð við sið­ferðis- og aga­brotum þeirra sem starfa í kirkj­unni. Teljum við rétt að farið verði yfir þær siða­reglur og þær bættar í ljósi þess­ara sið­ferð­is­brota.“

Braut siðferðislega á tveimur konum

Konurnar fimm höfðu lýst kyn­ferð­is­legu áreiti, sið­ferð­is­brotum og óásætt­an­legri hegðun séra Ólafs í sam­skiptum hans við sig og kærðu hann til úrskurð­ar­nefndar Þjóð­kirkj­unnar.

Eftir að úrskurð­ar­nefndin lauk máli sínu áfrýj­aði séra Ólafur til áfrýj­un­ar­nefndar úrskurð­ar­mála. Nið­ur­staðan var sú að hann braut sið­ferði­lega á tveimur af kon­unum og var brot­unum lýst í nið­ur­stöðu nefnd­ar­innar. Málinu er nú lokið og séra Ólafur var leystur frá emb­ætti sem sókn­ar­prestur í þjón­ustu Þjóð­kirkj­unnar með því að emb­ætti hans var lagt niður í vor. Í yfir­lýs­ing­unni segir að allar kon­urnar fimm hafi átt það sam­eig­in­legt að hafa átt í sam­skiptum við hann í starfi sínu og þjón­ustu á kirkju­legum vett­vangi þar sem þessi sið­ferð­is­brot voru framin.

Frakkur og ágengur

Í nið­ur­stöðu áfrýj­un­ar­nefndar er hægt að lesa lýs­ingu á þeim brotum sem Ólafur framdi frá haustinu 2002 og fram á árið 2017 gagn­vart einni konu, sem starf­aði sem prestur á þeim tíma sem brotin áttu sér stað. Þar segir m.a. að Ólafur hafi sýnt af sér áreitni sem „hefði falist í því að áfrýj­andi narti í eyrna­snepla, kossum á kinn sem fær­ist yfir á eyrna­snepla sem sleiktir séu snöggt, kæf­andi faðm­lögum par sem henni hafi verið lyft frá gólfi og haldið í fangi. Einnig hafi áfrýj­andi tekið skó af fótum varn­ar­að­ila og ýmist veitt eða boðið fóta­nudd án þess að um það hafi verið beðið. Þessi til­vik hafi verið mörg og hátt­semin í raun óslitin.“

Ólafur sagði að faðm­lög hans hafi verið vina­hót og eðli­leg og að hann kann­að­ist við að lyfta fólki upp í faðm­lögum en „að það hafi verið stælar og skýrst af því að hann sé í eðli sínu bæði frakkur og ágengur.“ Hann full­yrti að hann hefði aldrei kysst kon­una með tungu sinni né nartað í eyra hennar í þau 15 ár sem þau unnu saman en stað­festi að hann hefði mörgum árum áður boðið henni fóta­nudd sem hún hefði afþakkað.

Hægt er að lesa yfir­lýs­ing­una í heild hér og nið­ur­stöðu Áfrýj­un­ar­nefndar hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

trúmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár