Ströngustu skilyrði Svandísar taka gildi 18. september

Veðrið vinnur með hvölum í dag því skip Hvals hf. fara ekki til veiða á meðan hraust­leg haust­lægð gengur yfir land og mið. Frestun gild­is­töku hluta nýrrar reglu­gerðar mat­væla­ráð­herra til 18. sept­em­ber vinnur hins vegar með skytt­unum.

Reglugerðin
Reglu­gerðin Ný reglu­gerð um veiðar á lang­reyðum tók gildi í gær. Undan eru þó skildar greinar um þjálfun og gæða­mál sem taka ekki gildi fyrr en í lok ver­tíðar. Mynd: Heimildin

Nokkur af þrengstu skil­yrðum nýrrar reglu­gerðar Svan­dísar Svav­ars­dóttur mat­væla­ráð­herra um veiðar á lang­reyðum taka ekki gildi fyrr en 18. sept­em­ber. Hval­veiði­ver­tíðin er háð veðri og vindum og hefst því ekki fyrr en lygnir eftir djúpa lægð sem gengur yfir í kvöld og nótt. Í fyrra var síð­asta lang­reyð­urin veidd af skytt­unum um borð í Hval 9 þann 28. sept­em­ber. Sú var kven­kyns, rúm­lega 18 metrar á lengd og var hún skotin tveimur skutlum áður en hún dó.

„Reglu­gerð þessi öðl­ast þegar gildi,“ segir neðst í nýju reglu­gerð Svan­dísar. En – því er svo bætt við að hluti 8. greinar hennar og öll 9. greinin öðlist „þó gildi 18. sept­em­ber 2023“.

8. greinin fjallar um þjálfun, fræðslu og hæfni skytt­anna um borð í hval­veiði­bát­unum. Í fyrri hluta hennar segir að tryggja skuli að minnsta kosti þrír úr áhöfn hafi reynslu af hval­veiðum – hafi verið við slíkar veiðar í minnst sex mán­uði á síð­ustu fimm árum. Þó sé heim­ilt að víkja frá þessu skil­yrði „þegar sér­stak­lega stendur á“ og skip­verji sýnt fram á hæfni og þekk­ingu sam­kvæmt mati Fiski­stofu. Þetta ákvæði hefur þegar tekið gildi.

Þurfa ekki á námskeið strax

Það er hins vegar síð­ari hluti grein­ar­innar sem tekur ekki gildi fyrr en eftir rúm­lega tvær vikur. Þar segir: „Skyttur sem ann­ast veiðar og aflífun á dýrum skulu hafa lokið nám­skeiði í með­ferð hval­veiði­byssu og sprengiskutla og í aflíf­un­ar­að­ferðum við hval­veiðar. Skyttur skulu jafn­framt hafa lokið nám­skeiði, við­ur­kenndu af eft­ir­lits­að­ilum, sem að lág­marki skal inni­halda fræðslu um líf­fræði, þ.m.t. atferli, sárs­auka­skyn og streitu, og vist­fræði með til­liti til hvala og um reglu­verk sem um hval­veiðar gildir.“

Öll 9. greinin, sem fjallar um gæða­hand­bók og skýrslu um fram­kvæmd veiða, tekur heldur ekki gildi fyrr en 18. þessa mán­aðar. Í henni segir að leyf­is­hafi, þ.e. Hvalur hf., beri ábyrgð á að halda gæða­hand­bók sem skuli vera aðgengi­leg eft­ir­lits­að­ilum og ráðu­neyti. Hún skuli m.a. inni­halda verk­lag við skimun eftir kálfum, verk­lag við áætlun um lengd dýrs og und­ir­bún­ing end­ur­skota. „Verklag skal vera til þess fallið að tryggja að lang­reyðar séu aflíf­aðar á þann hátt að það valdi dýrum sem minnstum sárs­auka og taki sem skemmstan tíma og séu ekki veiddar á þann hátt að valdi þeim óþarfa lim­lest­ingum eða kvölum,“ segir einnig í þess­ari grein. „Eft­ir­lits­að­ilar geta kraf­ist úrbóta á verk­lagi sé það ekki til þess fallið að tryggja fram­an­greind skil­yrði.“

Afsláttur gefinn strax

Svandís Svav­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra til­kynnti í gær að hval­veiðar gætu haldið áfram en með hert­ari skil­yrðum og auknu eft­ir­liti.

LögmaðurKatrín Odds­dóttir gerir ýmsar athuga­semdir við nýja reglu­gerð mat­væla­ráð­herra.

„Ég skil ekki hvers vegna verið er að gefa gálga­frest á reglum sem ráðu­neytið telur þurfa utan um þessa starf­semi til þess að tryggja að hún sam­ræm­ist þeim ramma sem þarna er mark­aður,“ segir Katrín Odds­dóttir, lög­maður Nátt­úru­vernd­ar­sam­taka Íslands, við Heim­ild­ina. „Ég vil segja það hreint út, mér finnst þessi frestur með ólík­indum. Það er mjög, mjög und­ar­legt að búa til ein­hvern ramma en gefa svo strax í byrjun afslátt af honum hvað tím­ann varðar. Annað hvort þarf þessar reglur til að veið­arnar séu í lagi eða ekki.“

Skima þarf eftir kálfum og veiða í dagsbirtu

Í reglu­gerð­inni er að finna marg­vís­leg skil­yrði, sum ný, en önnur sem áður höfðu verið sett í reglu­gerð síð­asta sum­ars sem nú hefur verið felld úr gildi. M.a. á Hvalur hf. að til­kynna eft­ir­lits­að­ilum atvik sem upp koma við veiðar „eins fljótt og unnt er“ og eigi síðar en tveimur virkum dögum eftir að veiði­ferð lýkur. Eru frá­vikin skil­greind sér­stak­lega, m.a. ef fram­kvæma þarf end­ur­skot, líkt og raunin varð ítrekað á síð­ustu ver­tíð. Þá skal til­kynna ef sprengiskut­ull springur ekki, ef hann hittir ekki skil­greint mark­s­væði, ef grunur leikur á að kálfur fylgi dýri og ef dýr sem skotið var „sleppur eða tap­ast“.

Tillögur Hvals hf. til úrbóta á veið­ar­færum eru einnig komnar inn í reglu­gerð­ina, m.a. notkun á svo­kall­aðri „skot­línu­körfu“ og að mið á hval­veiði­byssu sé með upp­lýstum punkti.

Þá er til­tekið í hinni nýju reglu­gerð að veiðar skuli fara fram í dags­birtu og að ganga þurfi úr skugga um að kálfur fylgi ekki dýri sem er í sigti skytt­anna.

Veiðarnar geti ekki samræmst lögum um dýravelferð

Mynd­bandseft­ir­liti því sem reglu­gerð síð­asta árs kvað á um verður fram­haldið og tekið fram að Mat­væla­stofnun skuli hafa eft­ir­lit með því að „farið sé að lögum um vel­ferð dýra og reglu­gerð þess­ari við veiðar á lang­reyðum“.

Þetta er eitt þeirra ákvæða reglu­gerð­ar­innar sem Katrínu Odds­dóttur þykir skjóta skökku við. „Við vitum að sam­kvæmt bæði Eft­ir­lits­skýrslu MAST um veið­arnar í fyrra og nið­ur­stöðu fagráðs um vel­ferð dýra þá er nið­ur­staðan sú að þessar veiðar geti ekki farið fram í sam­ræmi við þessi lög,“ segir hún. Starfs­hóp­ur­inn sem Svandís skip­aði til að kanna mögu­leika á því að draga úr frá­vikum við veið­arnar reyndi að sögn Katrínar „með engum hætti að ávarpa það mál“. Svandís vís­aði m.a. í skýrslu starfs­hóps­ins er hún ákvað að veið­arnar mættu fara fram. „Mér finnst því eins og reglu­gerðin segi hrein­lega: Veið­arnar mega fara fram en það er aug­ljóst að þær geti ekki farið fram.“

Hún seg­ist ekki sjá hvernig MAST eigi að tryggja að veið­arnar fari fram í sam­ræmi við dýra­vel­ferð­ar­lögin þegar sama eft­ir­lits­stofnun hefur sagt að þær geti ekki stað­ist þau, „burt séð frá ein­hverjum teg­undum á skutlum og öðru“.

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hvalveiðar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár