Myndrit: Fjöldi innflytjenda á Íslandi og í OECD

Hlutfall fólks með erlendan upp­runa er um 13 pró­sent af íbúa­fjölda Íslands.

Útlend­inga­mál hafa verið ofar­lega á baugi í sam­fé­lags­um­ræð­unni Á Íslandi und­an­farin miss­eri. Tvær ástæður búa þar að baki, öðrum fremur: Aldrei hefur fjöldi flótta­manna í heim­inum verið jafn mik­ill og margar þjóðir heims hafa þess vegna ákveðið að taka á móti fleiri flótta­mönnum og heim­ila fleiri inn­flytj­endum að setj­ast að.

Hin ástæðan er svo að hér á landi, eins og víða ann­ar­staðar, býr fólk sem er ekki hlynnt því að stjórn­völd taki á móti fleira fólki í neyð eða leyfi frek­ari inn­flutn­ing fólks af öðrum ástæðum. Sumir telja jafn­vel Ísland taka á móti of mörgum flótta­mönnum.

Sé fjöldi inn­flytj­enda á ári hér á landi bor­inn saman við fjölda inn­flytj­enda í völdum löndum OECD, nánar til­tekið Norð­ur­löndin, Þýska­land og Bretland, sést að Ísland tók á móti fæstum flótta­mönnum árið 2015 ef Slóvakía er und­an­skilin. Á árunum 2002 til 2012 vermdi Ísland neðsta sæti list­ans meðal OECD-ríkj­anna.

Það er auð­vitað ósann­gjarn sam­an­burður, að bera lítið eyríki saman við stærstu iðn­veldi heims. Það verður þess vegna að leið­rétta sam­an­burð­inn í þessum efnum með ein­hverjum ráðum.

Hér verður Ísland borið saman við valin OECD-ríki með því að skoða fjölda inn­flytj­enda sem hlut­fall af vergri lands­fram­leiðslu. Hugsunin er sú að með auknum efna­hags­vexti sé efna­hags­legt rými til þess að taka á móti fleiri inn­flytj­endum, flótta­fólki eða hæl­is­leit­endum.

Hér að neðan hefur hlut­fall­inu verið breytt í vísi­tölu þar sem árið 2002 er grunnur. Greini­lega má sjá að í efna­hags­upp­sveifl­unni sem náði hámarki árið 2007 að fjöldi inn­flytj­enda jókst ekki í takt við efna­hags­sveifl­una. Þá hefur Íslandi ekki tek­ist að ná aftur sama „jöfn­uði“ efna­hags og fjölda inn­flytj­enda og árið 2002.

Hlutfall fólks með erlendan upp­runa af íbúa­fjölda á Íslandi var í upp hafi árs­ins 2017 12,8 pró­sent. Hlut­falls­legur fjöldi fólks sem er af erlendu bergi brotið hefur auk­ist jafnt og þétt á Íslandi á und­an­förnum árum. Hag­stofan hefur tekið þessar tölur saman.

Samkvæmt umfjöllun Hag­stof­unnar síðan í októ­ber í fyrra þá er inn­flytj­andi og önnur kyn­slóð inn­flytj­enda skil­greind svo í gagna­safn­inu: „Inn­flytj­andi er ein­stak­lingur sem er fæddur erlendis og á for­eldra sem einnig eru fæddir erlendis, svo og báðir afar hans og báðar ömmur. Önnur kyn­slóð inn­flytj­enda eru ein­stak­lingar sem fæddir eru á Íslandi og eiga for­eldra sem báðir eru inn­flytj­endur. Fólk er talið hafa erlendan bak­grunn ef annað for­eldrið er erlent. Ein­stak­lingur sem fædd­ist erlendis en á for­eldra sem báðir eru fæddir hér á landi telst einnig hafa erlendan bak­grunn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flóttamannavandi

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár