Aldrei mælst meiri ánægja með störf forseta

68,6 pró­sent Íslend­ingar eru ánægðir með störf Guðna Th. Jóhann­es­sonar sem for­seta Íslands, sam­kvæmt nýrri könnun frá MMR, sem jafn­framt er fyrsta könn­unin á ánægju með störf hans.

Ánægja með störf for­seta hefur aldrei mælst eins mikil frá því að MMR hóf slíkar mæl­ingar, að því er fram kemur í frétta­til­kynn­ingu frá MMR.

25 pró­sent aðspurðra segj­ast hvorki ánægð né óánægð með stör hans en ein­ungis 6,4 pró­sent segj­ast óánægð með störf hans. Und­an­farin ár hafa á bil­inu 15-30 pró­sent sagst vera óánægð með störf Ólafs Ragnars Gríms­sonar sem for­seta, en ánægjan með störf hans hefur verið í kringum 45-64 pró­sent.

Ánægja með störf Guðna sem for­seta er mis­mun­andi eftir stuðn­ingi við stjórn­mála­flokka, og þau sem styðja rík­is­stjórn­ar­flokk­ana eru nokkuð óánægð­ari með störf for­seta en þau sem styðja aðra stjórn­mála­flokka. Kjós­endur Sam­fylk­ing­ar­innar eru ánægð­astir með störf for­set­ans, en 96% þeirra segj­ast ánægð með hann. 83,6 pró­sent kjós­enda Vinstri grænna, 76,1 pró­sent kjós­enda Bjartrar fram­tíðar og 71,8 pró­sent kjós­enda Pírata eru ánægð með störf for­set­ans. 75,1 pró­sent kjós­enda ann­arra flokka eru ánægð með Guðna.

47,7 pró­sent kjós­enda Fram­sókn­ar­flokks­ins segj­ast hins vegar ánægð með störf for­set­ans, og 50,3 pró­sent kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár