„Hér er algjörlega vegið að starfi mínu innan lögreglunnar“

Lektor í lög­reglu­fræðum við Há­skól­ann á Ak­ur­eyri segir umræðu um hana á Útvarpi Sögu í tengslum við spill­ingu innan lög­regl­unnar vera afskap­lega aumk­un­ar­verða.

Eyrún Eyþórsdóttir
Eyrún Eyþórs­dóttir Mynd: RÚV

Eyrún Eyþórs­dóttir, lektor í lög­reglu­fræðum við Há­skól­ann á Ak­ur­eyri, segir í Facebook-færslu að Útvarp saga hafi vegið að starfi sínu innan lög­regl­unnar og Háskól­ans á Akureyri með mjög ómak­legum hætti.

Þá segir hún umræðu á Útvarpi Sögu um hana í tengslum við spill­ingu innan lög­regl­unnar vera afskap­lega aumk­un­ar­verða. Tölu­verðar deilur hafa verið innan lög­­­­regl­unn­­­­ar, og þá einkum í garð rík­­­­is­lög­­­­reglu­­­­stjóra, Har­alds Jo­hann­essen, en meðal ann­­­­ars hefur komið fram að þær teng­ist fata­­málum lög­­­­­­­reglu og bíla­­mál­um, ásamt öðrum mál­u­m.

Í þætti á Útvarpi Sögu sem útvarp­aður var í byrjun síð­ustu viku gerðu Arn­þrúður Karls­dóttir og Pétur Gunn­laugs­son spill­ingu innan lög­regl­unnar að umtals­efni. Á vef­síðu stöðv­ar­innar segir að í þætt­inum hafi verið nefnt dæmi „þar sem Eyrún Eyþórs­dóttir sem á þeim tíma gengdi stöðu vara­þing­manns Vinstri grænna var ráðin án aug­lýs­ingar inn í svo­kall­aða hat­urs­glæpa­deild lög­regl­unnar þar sem henni var ætlað að rann­saka hat­urs­glæpi, en eins og flestum er kunn­ugt var hennar fyrsta verk að ráð­ast gegn Útvarpi Sögu á þeim vett­vangi og mis­not­aði aðstöðu sína innan lög­regl­unnar í póli­tískum til­gangi.“

Arn­þrúður sagði meðal ann­ars að Eyrún hefði ekki einu sinni nokkra ein­ustu reynslu af rann­sókn saka­mála, hún hefði verið send þarna beint inn af Vinstri grænum. Svo væri hún nú komin í Háskól­ann á Akureyri þar sem hún þætt­ist vera sér­fræð­ingur í ein­hverjum hat­urs­glæpa­fræðum sem aðjúnkt þar hún kennir „þessi svoköll­uðu hat­urs­glæpa­fræði.“

„Ég spyr hvar lærði hún það eign­lega? Fólk verður að vita að það er eng­inn lög­reglu­skóli í land­inu, ég hef fulla samúð með þeim sem ætl­uðu sér inn í lög­regl­una á þeim for­sendum að um alvöru lög­reglu væri að ræða en ekki þetta útþynnta starf sem verið er að bjóða þarna upp á, það er kom­inn tími á að það sé sagt frá þessum aðilum og hverjir þeir eru,“ sagði Arn­þrúður í þætt­inum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár