Vonast til að aðgerða­plan bíti það fast að samningsaðilar komi að borðinu

Formaður VR segir að meg­in­mark­mið fyr­ir­hug­aðra verk­falls­að­gerða sé fyrst og fremst að reyna ná samn­ingum.

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR.
Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR. Mynd: Aðsend mynd

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, segir um fyr­ir­hug­aðar verk­falls­að­gerðir að meg­in­mark­miðið sé auð­vitað fyrst og fremst að reyna ná samn­ingum. „Við von­umst til að þetta aðgerða­plan bíti það fast að við fáum samn­ings­að­ila að borð­inu.“ Frá þessu er greint í Frétta­blað­inu í morgun.

[links]Stjórn­ VR­ ­sam­þykkti á fundi fyrr í vik­unni að boða til­ ­leyni­legrar ­at­kvæða­greiðslu um verk­fall hjá hóp­bif­reiða­fyr­ir­tækjum á félags­svæð­i VR­ og í gisti­þjón­ustu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og í Hvera­gerð­i. Verk­falls­að­gerð­irnar dreifast á 15 daga en verði þær sam­þykktar er fyrsta verk­fall fyr­ir­hugað 22. mars næst­kom­andi. Verði ekki gengið frá samn­ingum er stefnt á ótíma­bundna vinnu­stöðvun 1. maí.

Ragnar Þór seg­ist í sam­tali við Frétta­blaðið gera ráð fyrir því að atkvæða­greiðsla um aðgerð­irnar hefj­ist snemma í næstu viku en ein­ungis þeir starfs­menn sem aðgerð­irnar munu ná til geta greitt atkvæði. Það þýði að þátt­takan þarf að lág­marki að vera 20 pró­sent til að atkvæða­greiðslan telj­ist gild.

Hann seg­ist ekki vera kom­inn með end­an­legar tölur yfir fjölda félags­manna VR sem aðgerð­irnar gætu náð til en lík­leg­ast sé um yfir þús­und manns að ræða.

„Ég á ekki von á því að það verði bit­ist eitt­hvað um fram­kvæmd­ina en það má alveg búast við því að Samtök atvinnu­lífs­ins láti reyna á öll álita­mál sama hver þau eru. Það hefur alltaf verið eðli ferl­is­ins að það sé látið reyna á nán­ast allt fyrir Félags­dómi,“ segir Ragnar Þór við Frétta­blaðið

Það þurfi að passa upp á mörg praktísk mál í þessu ferli öllu. „Við erum fyrst og fremst að reyna að gera þetta rétt og við viljum vanda okkur. Við kvörtum alla­vega ekki yfir aðgerða­leysi þessa dag­ana.“ Ragnar segir að aðilar muni hitt­ast hjá rík­is­sátta­semj­ara næst­kom­andi fimmtu­dag þótt fundur hafi ekki form­lega verið boð­aður. Í frétt­inni kemur fram að sam­kvæmt lögum þurfi að halda fund innan við tveimur vikum frá því að við­ræðum er slitið en sá frestur rennur út á fimmtu­dag­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár