Mynd af aðstæðunum þar sem Sigurður Ingi lét rasísk ummæli falla dreift víða á netinu

Þegar farið var fram á að for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins myndi taka þátt í því að halda á fram­kvæmda­stjóra Bænda­sam­taka Íslands á mynd á hann að hafa sagt: „á að mynda mig með þeirri svörtu“. Aðstoð­ar­maður hans er ekki sjá­an­leg á mynd­inni.

Vig­dís Häsler, fram­­­kvæmda­­­stjóri Bænda­­­sam­­­taka Íslands, vildi fá mynd af sér að „plank­a“ á meðan að for­ystu­fólk í Bænda­sam­tökum Íslands og Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og inn­við­a­ráð­herra, héldu á henni í mót­töku Fram­sókn­ar­flokks­ins vegna Bún­að­ar­þings fyrir átta dögum síðan.

Samkvæmt frétt Stund­ar­innar sem birt­ist í gær­kvöldi á Sigurður Ingi að hafa brugð­ist við þeirri beiðni með því að segja: „á að mynda mig með þeirri svörtu“.

Myndina, sem var tekin í kjöl­farið, má sjá hér að ofan. Hún komst í dreif­ingu seint í gær­kvöldi og er nú aðgengi­leg víða á net­inu. Þar sjást þeir Sig­ur­geir Sindri Sig­ur­geirs­son, fyrr­ver­andi for­maður Bænda­sam­taka Íslands, Hösk­uldur Sæmunds­son, sér­fræð­ingur á mark­aðs­sviði og Ásgeir Helgi Jóhanns­son, lög­fræð­ingur sam­tak­anna, halda á Vigdísi en Sigurður Ingi sést fyrir aftan Ásgeir.

Sigurður Ingi hefur neitað að stað­festa hver ummælin voru nákvæm­lega en beðist afsök­unar á þeim í yfir­lýs­ingu sem birt­ist á mánu­dag og sagst hafa látið „óvið­ur­kvæmi­leg orð“ falla í garð Vigdísar.

Að­­stoð­­ar­­maður Sigurðar Inga, Ing­veldur Sæmunds­dóttir, sagði við DV á sunnu­dag að það væri „algjört bull“ að ummælin hefðu fallið. Hún hefði verið edrú ogstaðið við hlið Sigurðar Inga þegar til stóð að taka mynd­ina. Líkt og sést á mynd­inni hér að ofan stóð Ing­veldur ekki við hlið Sigurðar Inga þegar myndin var tekin, en heim­ildir Kjarnans herma að ummælin hafi verið látin falla við þær aðstæður sem birt­ast á mynd­inni.

Viðbrögð sem eldast ekki vel

Hefð er fyrir því að sumir stjórn­mála­flokkar haldi ein­hvers­konar sam­kvæmi í kringum Bún­að­ar­þing Bænda­sam­taka Íslands og bjóði for­ystu­mönnum þeirra, og öðr­um. Þingið var sett síð­ast­lið­inn fimmtu­dag og í mót­töku sem Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hélt fyrir fund­ar­menn um kvöldið varð ofan­greint atvik.

Umfjöllun um upp­á­kom­una birt­ist fyrst í Orð­inu á göt­unni á Eyj­unni, slúð­ur­vett­vangi sem heyrir undir DV þar sem skrifað er nafn­laust, á sunnu­dag klukkan 15:30. Klukku­tíma og þremur mín­útum síðar birt­ist frétt á vef DV þar sem Ing­veldur Sæmunds­dótt­ir, póli­tískur aðstoð­ar­maður Sig­urðar Inga til margra ára, þvertók fyrir að yfir­maður hennar hefði við­haft rasísk ummæli. „Þetta er algjört bull,“ sagði Ing­veld­ur. Hún hefði verið edrú og staðið við hlið Sig­urðar Inga þegar til stóð að taka umrædda mynd með Vig­dísi. Ing­veldur sagði að Sig­urði Inga hefði ekki lit­ist vel á hug­mynd­ina og sagt að hann vildi ekki halda á Sjálf­stæð­is­manni.

Þessi við­brögð reynd­ust ekki eld­ast vel þegar Vig­dís gaf sjálf út yfir­lýs­ingu á mánu­dag þar sem hún sagði að „afar sær­andi ummæli“ hefðu verið látin falla og að hún hefði heyrt þau, sem og fleira starfs­­­­fólk Bænda­­­­sam­tak­anna. Hún sagði að hún hefði aldrei talið að hún þyrfti að setj­­­­­ast niður og skrifa yfir­­­lýs­ingu af þessu tagi. „Að­­stoð­­ar­­maður ráð­herr­ans var ekki við hlið hans þegar ummælin voru látin falla, eins og hún hefur haldið fram en myndir úr þess­­ari mynda­­töku sýna það án alls vafa. Það er sær­andi þegar reynt er að gera lítið úr upp­­lifun minni og þegar bein­línis rangar skýr­ingar eru not­aðar við það. Ég stend með sjálfri mér þegar kemur að þessu, ég veit hvað ég heyrði, ég veit hvað var sagt. Ég neita að bera ábyrgð á þeim orðum sem ráð­herr­ann við­hafði í minn garð. Duldir for­­dómar eru gríð­­ar­­legt sam­­fé­lags­mein og grass­era á öllum stigum sam­­fé­lags­ins. Þeir smætta verk ein­stak­l­inga og gjörðir niður í lit eða kyn.“

„Óvið­ur­kvæmi­leg orð“

Sig­urður Ingi og aðstoð­ar­menn hans höfðu ekki svarað fjöl­miðla­fólki allan sunnu­dag og mánu­dag. Eftir yfir­lýs­ingu Vig­dísar brást hann þó við og birti stöðu­upp­færslu á Facebook, fjórum dögum eftir að ummælin voru látin falla og sól­ar­hring eftir að fjöl­miðlar fjöll­uðu fyrst um þau. Þar sagð­ist hann hafa tamið sér að koma jafnt fram við alla. „En mér verður á eins og öðr­­­um. Það þykir mér mið­­­ur. Í kvöld­verð­­­ar­­­boði Fram­­­sóknar fyrir full­­­trúa á Bún­­­að­­­ar­­­þingi síð­­­ast­liðið fimmt­u­­­dags­­­kvöld, lét ég óvið­­­ur­­­kvæmi­­­leg orð falla í garð fram­­­kvæmda­­­stjóra Bænda­­­sam­tak­anna. Á þeim orðum biðst ég inn­­i­­­legrar afsök­un­­­ar. Í líf­inu er maður alltaf að læra á sjálfan sig. Sárt er þó að sá lær­­­dómur bitni á til­­­f­inn­ingum ann­­­arra.“

Ing­veld­ur, aðstoð­ar­kona hans sem hafði sagt að atvikið sem Sig­urður Ingi baðst afsök­unar á hefði aldrei átt sér stað, svar­aði fyr­ir­spurn RÚV á þann veg að hún hefði svarað DV að hún hefði verið að „segja frá því sem ég heyrði og varð vitni að og var það ekki borið undir ráð­herra.“

Vigdís og Sigurður Ingi ætla að hitt­ast á fund í dag. Með á fund­inum verður einnig stjórn Bænda­sam­tak­anna. Í sam­tali við RÚV í gær sagð­ist Vigdís vona að fund­ur­inn yrði til þess að hún gæti lagt málið til hliðar en það væri þó alfarið í höndum Sigurðar Inga. Vigdís sagði enn fremur að hún hafi fengið mikið af skila­boðum síð­ustu daga, meðal ann­ars frá for­eldrum ætt­leiddra barna, og ljóst sé að hvers­konar ras­ismi fær að við­gang­ast víða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár