„Nýi Bjarni er sem sagt að gagnrýna gamla Bjarna fyrir áróður og er hneykslaður“

Sigmar Guð­munds­son, þing­maður Við­reisnar, gagn­rýndi Bjarna Bene­dikts­son utan­rík­is­ráð­herra harð­lega á þing­fundi í dag. Sagði hann það hneyksli að ráð­herra kall­aði umfjöllun fjöl­miðla áróður.

Gagnrýni
Gagnrýni „Það er ekki Kveiks­þátt­ur­inn sem er hneyksli. Það er ábyrgð­ar­flótti Sjálf­stæð­is­flokks­ins sem er hneyksli,“ sagði Sigmar. Mynd: Bára Huld Beck

Sigmar Guð­munds­son, þing­maður Við­reisnar, skaut föstum skotum að Bjarna Bene­dikts­syni utan­rík­is­ráð­herra á þing­fundi í dag. Vísaði hann í við­brögð Bjarna við umfjöllun Kveiks um íslensku krón­una sem sýnd var á RÚV í gær­kvöldi. 

Í þætt­inum var fjallað um að sum fyr­ir­tæki fái að losna undan kostn­að­ar­sömum sveiflum á krón­unni en heim­ilin súpi ítrekað seyðið af óstöð­ug­leika hennar. Þar kom einnig fram að beinn kostn­aður við krón­una væri um 300 millj­arðar á ári. 

Bjarni gagnrýndi þáttinn harðlega

Bjarni tjáði sig um þátt­inn í Facebook-færslu í gær­kvöld. Þar sagði hann þátt­inn vera sam­felldan áróður gegn íslensku krón­unni. En krón­una segir hann vera einn grunn­inn að miklum hag­vexti und­an­far­inn ára­tug. Sagði hann þátt­inn hneyksli sem sliti margt úr eðli­legu sam­hengi og varp­aði röngu ljósi á heild­ar­mynd­ina. 

„Í heild­ina skorti í þennan þátt allt jafn­vægi, alla fag­mennsku og yfir­vegun í efna­hags­lega sam­heng­inu. Það er hálf sorg­legt að boðið sé upp á svona efni á Rík­is­út­varp­inu,“ sagði fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herr­ann á Facebook.

Hneyksli að ásaka fjölmiðil um áróður

Á þing­fundi sagði Sigmar það vera hneyksli að ásaka fjöl­miðil um áróður fyrir að vinna vinn­una sína. Sagði hann Bjarna ekki hafa bent á stað­reynd­ar­villur í umfjöllun Kveiks og Bjarna bera mikla ábyrgð á „vaxt­ar­brjál­æð­inu sem núna er allt að drepa.“

Vísaði Sigmar til þess að í kjöl­far efna­hags­hruns­ins 2008 hefði Bjarni sjálfur haldið því fram að krónan hefði þá skugga­hlið að vera sveiflu­vald­andi. Það gæti, að sögn Bjarna, ýtt undir óstöð­ug­leika í hag­kerf­inu sem drægi úr trausti á því.

„Þegar nákvæm­lega sömu sjón­ar­mið og hans árið 2008 eru viðruð í gær af virtum hag­fræð­ingum þá heitir það hneyksli og áróður gegn krón­unni. Nýi Bjarni er sem sagt að gagn­rýna gamla Bjarna fyrir áróður og er hneyksl­aður,“ sagði Sigmar.

Hann sagði Bjarna enn fremur vilj­andi gleyma að minn­ast á okur­vexti og verð­bólgu sem „alltaf er miklu hærri á Íslandi en ann­ars staðar.“ Enn fremur gleymi Bjarni að nefna hag­stjórn­ar­mis­tök Sjálf­stæð­is­flokks­ins sem felist í útgjalda­aukn­ing­unni. 

„Það er ekki Kveiks­þátt­ur­inn sem er hneyksli. Það er ábyrgð­ar­flótti Sjálf­stæð­is­flokks­ins sem er hneyksli,“ sagði Sigmar. 

Kjósa
84
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kári Jónsson skrifaði
    Bjarni Ben fékk SMS/símtal eftir grein flokksfélaganna (Illuga og Bjarni) frá þáverandi framkvæmdastjóra SFS-samtakanna um að þeir skyldu haga sér í ummælum um ARÐRÁNS-krónuna. Bjarni Ben hefur staðið sig með miklum sóma og samviskusemi allar götur síðan að verja útflutnings-atvinnugreinarnar á kostnað almannahagsmuna = arður sjávarútvegsinns er greiddur út úr fyrirtækjum einokunar-útgerðanna á erlendri grund, óslitna virðiskeðjan í sjávarútvegi tryggir það. Arður álfyrirtækjanna er fluttur út í formi vaxtagreiðslna til móðurfélaganna. Ferðaþjónustan borgar 11% virðisaukaskatt þegar önnur fyrirtæki í ARÐRÁNS-krónu-hagkerfinu borga 24.5% virðisaukaskatt. Afleiðingin er HRUN-gengi á krónunni (153 á móti 1-evru) þrátt fyrir jákvæðan viðskiptajöfnuð (60-milljarða) þar sem almenningur fær enga hlutdeild til að mæta 11-12% vaxtaokri og 8% verðbólgu, það eru verk nýja Bjarna Ben sem er strengjabrúða sérhagsmuna ofantaldra atvinnugreina.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár