Fimm þingmenn og fimm ráðherrar fara á þing Norðurlandaráðs

Aðal- og vara­menn úr fyrri lands­deild Norð­ur­landa­ráðs sem hlotið hafa end­ur­kjör fara á þing ráðs­ins sem haldið verður í næstu viku í Kaup­manna­höfn.

Þing Norð­ur­landa­ráðs verður haldið dag­ana 1. til 4. nóv­em­ber í Kaup­manna­höfn en þar koma saman þing­menn, for­sæt­is­ráð­herrar og aðrir ráð­herrar frá öllum Norð­ur­lönd­unum. Auk þess verður Jens Stol­ten­berg fram­kvæmda­stjóri NATO gestur á þing­inu. Þingið var ekki haldið í fyrra vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins.

Samkvæmt ákvörðun for­sætis­nefndar Alþingis mega aðal- og vara­menn úr fyrri lands­deild Norð­ur­landa­ráðs sem hlotið hafa end­ur­kjör fara á þingið. Þeir sem fara eru Oddný G. Harð­ar­dóttir, þing­flokks­for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, Steinunn Þóra Árna­dóttir, þing­maður Vinstri grænna, og Guð­mundur Ingi Krist­ins­son, sem er vara­maður og þing­maður Flokks fólks­ins.

Bryndís Har­alds­dóttir þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins fer einnig á þingið sem full­trúi Vest­nor­ræna ráðs­ins og Willum Þór Þórsson þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins fer til að hitta nor­rænna þing­for­seta sem funda alltaf í tengslum við þingið.

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá rit­ara Íslands­deildar Norð­ur­landa­ráðs fara einnig á þingið Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra og for­maður VG, Sigurður Ingi Jóhanns­son, sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra og for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, utan­rík­is­ráð­herra og þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Lilja Alfreðs­dóttir, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra og þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, umhverfis- og auð­linda­ráð­herra og þing­maður VG.

Alþingi ekki sett fyrr en undirbúningskjörbréfanefnd hefur lokið störfum

Rúmur mán­uður er síðan alþing­is­kosn­ingar fóru fram hér á landi og standa nú yfir við­ræður milli Vinstri grænna, Fram­sókn­ar­flokks­ins og Sjálf­stæð­is­flokks­ins að mynda rík­is­stjórn á ný. Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra sagði í sam­tali við RÚV í fyrra­dag að ljóst væri að Alþingi yrði ekki sett fyrr en und­ir­bún­ings­kjör­bréfa­nefnd hefði lokið störfum. Mikil vinna hefur verið hjá nefnd­inni und­an­farið en nefnd­ar­með­limir rann­saka meðal ann­ars end­ur­taln­ingu í Norð­vest­ur­kjör­dæmi.

For­sæt­is­ráð­herra sagði við RÚV að það væri afar ólík­legt að ný rík­is­stjórn og nýr stjórn­ar­sátt­máli yrði kynntur fyrir þann tíma. Hún sagði við­ræður for­manna flokk­anna ganga vel.

„Hins vegar er alveg ljóst að þing verður ekki sett fyrr en und­ir­bún­ings­kjör­bréfa­nefnd hefur lokið störfum og þá vænt­an­lega skilað drögum að nið­ur­stöðu til kjör­bréfa­nefndar sem svo verður kosin þegar þing er sett,“ sagði hún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár