Ásmundur Einar: allir Íslendingar geti eignast hlut í bankanum

Skoða ætti þann mögu­leika að allir Íslend­ingar geti beint og milli­liða­laust eign­ast hlut í Íslands­banka eða Lands­bank­anum. Slíkur sam­fé­lags­banki gæti orðið skyn­sam­leg aðgerð bæði efna­hags­lega og lýð­ræð­is­lega. Þetta segir Ásmundur Einar Daðason, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, í grein á vef­síðu flokks­ins.

Ásmundur Einar gerir til­lögu kröfu­hafa Glitnis um að afhenda rík­inu allt hlutafé í Íslands­banka að umtals­efni í grein­inni, og það að vænt­an­lega muni íslenska ríkið eign­ast Íslands­banka á næst­unni. Þá verði það þannig að ríkið eigi tvo af þremur stóru bönk­unum. „Það er mik­il­vægt að annar þess­ara banka verði að stórum hluta í eigu almenn­ings í land­inu. En í stað þess að ríkið eitt eigi bank­ann þá ættum við að skoða þann mögu­leika að allir Íslend­ingar geti beint og milli­liða­laust eign­ast hlut í öðrum þess­ara banka,“ segir Ásmundur í grein­inni. Í fram­haldi af þessu yrði mótuð stefna sem hefði það mark­mið að bjóða sem hag­kvæm­asta þjón­ustu og tryggja hags­muni almenn­ings.

„Í raun ætti að skoða þann mögu­leika að afhenda almenn­ingi hluta bank­ans gegn skýrum skil­yrðum og á hag­stæðum kjörum. Verði þetta skoðað þá þarf hins­vegar að móta mjög skýrar og gegn­sæjar reglur sem tryggja að ekki sé um að ræða aðkomu fárra útvaldra og að ekki sé hægt að fram­selja hlut­ina í von um skyndigróða.“

Lengi ljóst að Framsókn vill samfélagsbanka


Flokks­þing Fram­sókn­ar­flokks­ins sam­þykkti í vor ályktun um að Lands­bank­inn yrði í rík­i­s­eigu áfram og starfi sem sam­fé­lags­banki.„Lands­bank­inn verði sam­fé­lags­banki í eigu þjóð­ar­innar með það mark­miði að þjóna sam­fé­lag­inu í stað þess að hámarka hagnað. Til að bregð­ast við fákeppni á banka­mark­aði er nauð­syn­legt að Lands­bank­inn hafi þann til­gang að bjóða góða þjón­ustu á bestu kjörum til að efla sam­keppni í banka­þjón­ustu á lands­vísu. Lands­bank­inn verði bak­hjarl spari­sjóða­kerf­is­ins.“

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur verið á annarri skoðun og sam­kvæmt drögum að lands­fund­ar­á­lyktun telur flokk­ur­inn enga þörf á því að bankar séu í eigu rík­is­ins. „Fyrirséð er að eign­ar­hald á bönkum breyt­ist á næstu árum. Lands­fundur áréttar að engin þörf er á eign­ar­haldi rík­is­ins á fjár­mála­fyr­ir­tækjum til lengri tíma litið. Tryggja þarf dreifða eign­ar­að­ild að við­skipta­bönkum. Mik­il­vægt er að sölu­ferli við­skipta­bank­anna verði opið og gagn­sætt“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár