Góðar horfur þrátt fyrir allt

Helsti áhættu­þátt­ur­inn í hag­kerf­inu er ef kemur til nið­ur­sveiflu í ferða­þjón­ustu. Fátt bendir til þess að slíkt sé í kort­unum, en stoð­irnar í hag­kerf­inu eru traustar nú eftir sjö ára sam­fellt hag­vaxt­ar­skeið.

Arnór Sighvatsson, aðstoðarseðlabankastjóri.
Arnór Sig­hvats­son, aðstoð­ar­seðla­banka­stjóri. Mynd: Seðlabankinn.

Fátt bendir til þess að nið­ur­sveifla sé í kort­unum í efna­hags­lífi Íslend­inga, segir Arnór Sig­hvats­son, aðstoð­ar­seðla­banka­stjóri, í inn­gangs­orðum sínum að Fjár­mála­stöð­ug­leika, riti Seðla­banka Íslands, sem kom út í gær.

Í því er farið yfir helstu hag­tölur og upp­lýs­ingar um stöðu mála í hag­kerf­inu er varða fjár­mála­stöð­ug­leika og kerf­is­læga áhættu­þætti.

Arnór segir í inn­gangs­orðum sínum að staða hag­kerf­is­ins sé sterk, og hag­felld þróun unda­far­inna ára hafi styrkt und­ir­stöð­urnar til fram­tíðar litið. „Hag­vöxtur á Íslandi hefur staðið í u.þ.b. sjö ár sam­fleytt og horfur eru á hag­vexti í nokkur ár til við­bótar. Hið langa hag­vaxt­ar­skeið hefur gefið heim­ilum, fyr­ir­tækjum, hinu opin­bera og fjár­mála­kerf­inu svig­rúm til þess að lækka skuldir sínar í kjöl­far fjár­málakreppu og efna­hags­sam­dráttar. Efna­hagur allra geira þjóð­ar­bús­ins og staða þess gagn­vart útlöndum hafa því styrkst, en lækkun skulda hefur um leið haldið aftur af vext­inum og dregið hag­vaxt­ar­skeiðið og sér­stak­lega upp­haf nýrrar fjár­mála­upp­sveiflu á lang­inn,“ segir Arnór í inn­gang­inum.

Sterk staða

Í Fjár­mála­stöð­ug­leika má segja að sé dregin upp nokkuð traust­vekj­andi staða af íslenska hag­kerf­inu. Banka­kerfið er vel fjár­magnað, og áhættu­þættir innan þess eru ekki nándar nærri eins óvissir eins og reyndin var fyrir hrunið. End­ur­reistu bank­arnir þrír, Arion banki, Lands­bank­inn og Íslands - sem telj­ast kerf­is­lægt mik­il­vægir - eru vel fjár­magn­aðir, efna­hags­reikn­ingar þeirra eru skýrir og eign­fjár­staðan er tölu­vert langt yfir lög­legum lág­mörkum og við­miðum FME.

Meira en 650 millj­arða eigið fé er nú í end­ur­reistu bönk­unum þremur, en á und­an­förnum árum hefur eig­in­fjár­hlut­fallið verið á bil­inu 23 til 30 pró­sent, sem telst hátt í alþjóð­legum sam­an­burði.

Samhliða end­ur­upp­bygg­ingu banka­kerf­is­ins hefur skulda­staða heim­ila og fyr­ir­tækja verið að batna, og meiri þróttur ein­kennt atvinnu­lífið, eins og sam­fellt sjö ára hag­vaxt­ar­skeið er til marks um. Verð­bólga mælist nú með allra lægsta móti, eða 1,4 pró­sent, atvinnu­leysi er um þrjú pró­sent, og skulda­staða hins opin­bera hefur batnað hratt að und­an­förnu og orðin góð í alþjóð­legum sam­an­burði.

Áhættan snýr að ferðaþjónustu

Helsti vaxt­ar­broddur efna­hags­lífs­ins hefur verið ferða­þjón­ust­una og má segja að erlendir ferða­mann hafi komið Íslandi til bjargar eftir efna­hags­hrunið, en gjald­eyr­is­inn­spýt­ingin sem fylgt hefur miklum og örum vexti grein­ar­innar und­an­farin ár, hefur kynt undir hækkun eigna­verðs og stuðlað að sterkara gengi krón­unnar gagn­vart erlendum myntum.

Í kynn­ingu Hörpu Jóns­dóttur, fram­kvæmda­stjóra fjár­mála­stöð­ug­leika hjá Seðla­banka Íslands, kemur fram að til­taka með tvo sér­staka kerf­is­læga áhættu­þætti fyrir þjóð­ar­búið, eins og mál standa nú. Það er ferða­þjón­ustan og síðan fast­eigna­mark­að­ur­inn. Það eru helst áhrif ferða­þjón­ust­unnar á fast­eigna­mark­að­inn sem gera það að verkum, að þar geti legið áhætta, en í Fjár­mála­stöð­ug­leika kemur meðal ann­ars fram að um 5 þús­und íbúðir á Íslandi séu leigðar út í til ferða­manna í genum Airbnb, og er langstærstur hluti þeirra á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, einkum mið­svæðis í Reykja­vík.

Ef það kemur til nið­ur­sveiflu í ferða­þjón­ustu, þá gæti það leitt til hlið­ar­á­hrifa á fast­eigna­mark­aði og tölu­vert margar íbúðir komið út á fast­eigna­mark­að­inn.

En jafn­framt er þó tekið fram að horfur á fast­eigna­mark­aði séu með þeim hætti, að lík­leg­ast sé að verð muni halda áfram að hækka, en á und­an­förnum tólf mán­uðum hefur verðið hækkað um tæp­lega 20 pró­sent að með­al­tali.

Í sviðs­mynd sem fjallað er um í Fjár­mála­stöð­ug­leika, þar sem gert er ráð fyrir að fjöldi ferða­manna muni falla niður í það sem hann var á árunum 2014 og 2015, með til­heyr­andi tekju­dýfu fyrir þjóð­ar­búið, þá kemur fram að það geti haft tölu­vert mikil nei­kvæð efna­hags­leg áhrif. Gengi krón­unnar myndi veikj­ast, atvinnu­leysi aukast og almennur slaki ein­kenn þjóð­ar­bú­skap­inn.

Þrátt fyrir þetta, eru horf­urnar - almennt - taldar nokkuð góðar um þessar mundir. Verk­efnið framaundan verið þó að fylgj­ast náið með þeim atriðum sem helst geti snú­ist til hins verra, og ástunda góða hag­stjórn, en Arnór Sig­hvats­son, aðstoð­ar­seðla­banka­stjóri, minn­ist sér­stak­lega á það atriði í inn­gangi sínum.

Árétting:

Upp­haf­lega stóð að Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri hafi skrifað inn­gang­inn að rit­inu, líkt og hann gerir vana­lega. Síðar barst ábend­ing um að Arnór Sig­hvats­son aðstoð­ar­seðla­banka­stjóri hefði gert það í þetta sinn og var frétta­skýr­ing­unni í kjöl­farið breytt til sam­ræmis við þær upp­lýs­ingar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár