Alvarlega veikum fjölgar í Ísrael

Það er gjá á milli fjölda smita og fjölda alvar­legra veikra í Ísrael nú miðað við fyrstu bylgju far­ald­urs­ins. Engu að síður hafa sér­fræð­ingar áhyggjur af þró­un­inni. Um 60 pró­sent þjóð­ar­innar er bólu­sett.

Ísraelsk stjórnvöld sömdu við lyfjafyrirtækið Pfizer um bóluefni og rannsóknir samhliða bólusetningum.
Ísraelsk stjórn­völd sömdu við lyfja­fyr­ir­tækið Pfizer um bólu­efni og rann­sóknir sam­hliða bólu­setn­ingum. Mynd: EPA

Fjöldi sjúk­linga sem eru alvar­lega veikir af COVID-19 hefur ekki verið meiri í Ísrael í þrjá mán­uði. Í tölum frá heil­brigð­is­ráðu­neyti lands­ins, sem voru gefnar út í morgun og dag­blaðið Haaretz greinir frá, segir að 97 sjúk­lingar séu með alvar­leg ein­kenni og hefur þeim fjölgað um 30 pró­sent á einni viku. Ástand 22 er sagt tví­sýnt og sautján eru í önd­un­ar­vél á gjör­gæslu. Ekki hefur enn komið fram hvort og þá hversu margir þeirra sem liggja á sjúkra­húsi eru bólu­settir.

[adspot]

Í gær greindust 966 ný smit í Ísrael en á sama degi fyrir viku voru til­fellin 430. Sharon Alroy-Preis, lýð­heilsu­sér­fræð­ingur heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins, sagði í við­tali í morgun að umfangs­miklar bólu­setn­ingar í land­inu drægju aug­ljós­lega úr alvar­legum veik­indum en þeim færi þó fjölg­andi. „Fjöldi alvar­legra veikra sjúk­linga mun halda áfram að aukast ef við grípum ekki til aðgerða til að draga úr fjölgun smita,“ sagði hún í við­tal­inu. Ísraelar eru að hennar sögn á allt öðrum stað í far­aldr­inum en þeir voru í fyrstu bylgju hans í mars á síð­asta ári vegna bólu­efn­anna.

[links]Nackman Ash, sem fer fyrir aðgerðateymi í tengslum við veiru­far­ald­ur­inn, sagði í morgun að þrátt fyrir að bólu­setn­ingin kæmi í veg fyrir gríð­ar­lega fjölgun alvar­legra til­fella sam­hliða fjölgun smita þá væri sá fjöldi engu að síður umtals­verður. Í dag væru um 100 manns alvar­lega veikir af því „erum við byrjuð að hafa áhyggjur“.

Nú eru 11.390 eru með virkt smit í Ísrael og alvar­lega veikir því innan við 1 pró­sent þeirra.

Um níu millj­ónir manna búa í Ísrael. Kannanir sýna að um ein milljón vill ekki láta bólu­setja sig. For­sæt­is­ráð­herra lands­ins sagði í sjón­varps­ávarpi fyrir helgi að þennan hóp þyrfti að sann­færa um gildi bólu­setn­ing­ar­innar nú þegar „delta-far­ald­ur­inn“ tröll­ríður öllu.

Þegar hefur verið ákveðið að grípa til hertra aðgerða í Ísrael sem m.a. fel­ast í því að óbólu­settir þurfa að fram­vísa nei­kvæðu PCR-prófi á ýmsum sam­komu­stöðum þar sem yfir 100 manns koma saman inn­an­dyra. Hinir óbólu­settu þurfa sjálfir að greiða fyrir prófið. Þá verður grímu­skylda á ákveðnum stöðum einnig tekin upp að nýju.

Um 60 pró­sent ísra­elsku þjóð­ar­innar eru full­bólu­sett. Bólu­setn­ingar barna niður í allt að 12 ára eru hafnar.

Ísrael samdi við lyfj­aris­ann Pfizer í byrjun árs um að sam­hliða almennri og hraðri bólu­setn­ingu yrðu gerðar rann­sóknir á virkni efn­is­ins. Sú nýjasta bendir til að vörnin gegn smiti og mildum ein­kennum af delta-afbrigð­inu er mikið minni en gegn öðrum, eða rétt um 40 pró­sent. Sama rann­sókn bendir einnig til að vörn gegn alvar­legum veik­indum sé milli 80-90 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár