Rúmlega helmingur landsmanna andvígur veggjöldum

Rúmur helm­ingur lands­manna eða 52 pró­sent, sagð­ist and­vígur inn­heimtu veggjalda en um þriðj­ungur sagð­ist hlynntur. Stuðn­ings­fólk Mið­flokks­ins, Flokks fólks­ins og Pírata var lík­leg­ast til að vera and­vígt inn­heimtu veggjalda.

Rúmlega helm­ingur lands­manna kveðst and­vígur inn­heimtu veggjalda til að standa straum af rekstri þjóð­vega á Íslandi en um þriðj­ungur er hlynntur, sam­kvæmt nýrri könnun MMR. Jákvæðni gagn­vart veggjöldum jókst með auknum aldri og konur reynd­ust jákvæð­ari en karlar gagn­vart veggjöldum. Stuðn­ings­fólk Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Vinstri grænna og Við­reisnar reynd­ust lík­leg­ust til að segj­ast fylgj­andi veggjöldum en stuðn­ings­fólk Mið­flokks­ins ólík­leg­ust. Þá voru stuðn­ings­fólk Mið­flokks­ins, Flokks fólks­ins og Pírata lík­leg­ust til að segj­ast and­víg inn­heimtu veggjalda

Sjálfstæðismenn skipt um skoðun

Könnunin var fram­kvæmd dag­ana 18. til 28. jan­úar 2019 en ekki má sjá miklar breyt­ingar á afstöðu lands­manna frá síð­ustu könnun MMR í maí 2018. Nú kváð­ust 34 pró­sent svar­enda mjög and­víg slíkum veggjöldum, 18 pró­sent frekar and­víg, 21 pró­sent frekar fylgj­andi og 11 pró­sent mjög fylgj­andi. Þá kváð­ust 17 pró­sent hvorki fylgj­andi né and­víg inn­heimtu veggjalda.

Í grein­ingu MMR segir að þegar litið sé til breyt­inga nið­ur­staðna frá fyrri könn­unum má sjá hvernig afstaða fólks til veggjalda hefur breyst eftir flokkslínum eftir því sem liðið hefur á umræð­una. Má í því sam­bandi nefna að í jan­úar 2011, þegar Vinstri græn og Sam­fylk­ing sátu í rík­is­stjórn, mæld­ist mest and­staða meðal Sjálf­stæð­is­manna þegar spurt var hvort að nýta ætti veggjöld til að standa undir nýfram­kvæmdum í sam­göngu­málum og sögð­ust ekki nema 11 pró­sent Sjálf­stæð­is­fólks fylgj­andi veggjöldum. Í maí 2017 sögð­ust hins vegar 32 pró­sent Sjálf­stæð­is­manna vera hlynnt því að veggjöld stæðu undir rekstri þjóð­vega á Íslandi, í apríl 2018 var hlut­fallið komið upp í 45 pró­sent og í dag mælist það 49 pró­sent

Stuðningsfólk Miðflokksins, Flokks fólksins og Pírata líklegust til að vera andvíg veggjöldum

Stuðn­ings­fólk Sjálf­stæð­is­flokks­ins, 49 pró­sent, Vinstri grænna, 44 pró­sent og Við­reisna, 44 pró­sent reynd­ust lík­leg­ust til að segj­ast fylgj­andi veggjöldum en stuðn­ings­fólk Mið­flokks­ins ólík­leg­ust 14 pró­sent. Þá voru stuðn­ings­fólk Mið­flokks­ins 73 pró­sent, Flokks fólks­ins 61 pró­sent og Pírata 59 pró­sent lík­leg­ust til að segj­ast and­víg inn­heimtu veggjalda en 65 pró­sent stuðn­ings­fólks Mið­flokks og 61 pró­sent stuðn­ings­fólks Flokks fólks­ins kváð­ust mjög and­víg.

Jákvæðni gagnvart veggjöldum jókst með auknum aldri

Konur reynd­ust jákvæð­ari gagn­vart veggjöldum en karlar en 33 pró­sent kvenna kváð­ust fylgj­andi inn­heimtu veggjalda til að standa straum af rekstri þjóð­vega á Íslandi, sam­an­borið við 29 pró­sent karla. Karlar voru hins vegar lík­legri til að segj­ast and­vígir inn­heimtu slíkra gjalda, 54 pró­sent heldur en konur 49 pró­sent. Jákvæðni gagn­vart veggjöldum jókst með auknum aldri en 42 pró­sent svar­enda í elsta ald­urs­hópi kváð­ust fylgj­andi inn­heimtu veggjalda, sam­an­borið við 36 pró­sent þeirra á aldr­inum 50 til 67 ára og 27 pró­sent þeirra undir fimm­tugu. Lítill munur var á afstöðu svar­enda eftir búsetu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár