Framsóknarflokkurinn bætir marktækt við sig fylgi

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn eykur mark­tækt við sig fylgi frá því í októ­ber, sam­kvæmt nýrri könnun frá MMR. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn mælist með 12,9 pró­senta fylgi nú sam­an­borið við 10,8% í síð­ustu könnun. Fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins mæld­ist 22,9%, en var 23,7% í síð­ustu könnun. Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina mælist nú 35,6%, en í síð­ustu könnun var fylgið 33,1% og þar á undan, í lok sept­em­ber, mæld­ist það 31,4%.

Píratar halda áfram að vera langstærsti flokkur lands­ins, níunda mán­uð­inn í röð. Píratar eru með 35,5% fylgi í könn­un­inni, sem er ívið meira en í síð­ustu könnun, þegar 34,2% sögð­ust styðja Pírata.

Sam­fylk­ingin mælist nú með 9,4% fylgi í könn­un­inni, en í síð­ustu könnun mæld­ist fylgið 10,5%. Vinstri-græn mæl­ast með sama fylgi og Sam­fylk­ingin, 9,4%, en í síð­ustu könnun var VG með 9,9%. Björt fram­tíð mælist með sama fylgi og síð­ast, 4,6%.

Í könn­unum MMR eru vik­mörk allt að 3,1 pró­sent, sem þýðir að raun­veru­legt fylgi flokk­anna er lík­lega ein­hvers staðar á bil­inu 3,1 pró­sentum lægra til 3,1 pró­sentum hærra en nið­ur­staða könn­un­ar­innar gefur til kynna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár