Gildi mun greiða atkvæði gegn tillögu um milljarða bónuskerfi hjá Icelandair Group

Einn stærsti hlut­hafi Icelandair Group telur til­lögu stjórnar félags­ins um upp­setn­ingu nýs hvata­kerfis, sem er ætlað að halda lyk­il­starfs­fólki, of umfangs­mikla. Hann mun kjósa gegn til­lög­unni.

Líf­eyr­is­sjóð­ur­inn Gildi mun greiða atkvæði gegn til­lögu stjórnar Icelandair Group um að setja á fót hvata­kerfi fyrir fram­kvæmda­stjórn félags­ins og valda lyk­il­starfs­menn. Tillagan verður tekin fyrir á aðal­fundi félags­ins sem fram fer á morgun, en Gildi er fimmti stærsti hlut­hafi félags­ins með 3,19 pró­sent hlut.

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá sjóðnum er það mat stjórn­enda hans að til­lagan um hvata­kerfið sé of umfangs­mikil og að sjóð­ur­inn muni greiða atkvæði gegn öllu sem snýr að upp­setn­ingu þess. Heim­ildir Kjarnans herma að það hafi verið til umræðu hjá öðrum stórum hlut­höfum að greiða atvæði gegn til­lög­unni.

Sam­kvæmt til­lögu stjórn­ar­innar snýst kerfið um að hóp­ur­inn muni geta fengið allt af 25 pró­sent af árs­launum sínum í bónus í formi kaup­réttar á hlutum í Icelandair Group. Fyr­ir­hugað er að gefa út 250 milljón hluti í ár vegna kerf­is­ins og alls 900 milljón hluti á þriggja ára tíma­bili. Miðað við mark­aðsvirði Icelandair Group í dag er virði þeirra hluta sem greiða á út sem kaupauka um tveir millj­arðar króna. Hægt verður að inn­leysa umrædda kaup­rétti að þremur árum liðn­um.

Þegar dag­skrá aðal­fundar Icelandair Group var birt fyrir skemmstu kom fram að mark­miðið með inn­leið­ingu­hvata­kerf­is­ins sé meðal ann­ars sá að draga úr líkum á að lyk­il­starfs­menn yfir­gefi Icelandair Group með litlum fyr­ir­vara.

Töp­uðu 13,7 millj­örðum í fyrra

Icelandair Group tap­aði 13,7 millj­­­­örðum króna á árinu 2021 miðað við gengi krónu í lok þess árs en félagið gerir upp í Banda­­­­ríkja­döl­­­­um. Þar af tap­aði félagið 5,1 millj­­­­arði króna á síð­­­­­­­ustu þremur mán­uðum árs­ins.

Rekstr­­­­ar­tap á síð­­­­asta ári var 17,7 millj­­­­arðar króna, en end­an­­­­legt tap dróst saman vegna þess að aðrar tekjur voru jákvæð­­­­ar. Þar á meðal voru sala eigna, í Iceland Travel og Icelandair Hotels, og tekju­­­­færsla vegna reikn­aðra vaxta á vaxta­­­­lausri frestun á greiðslu skatta.

[adspot]Tap Icelandair Group á árinu 2020 var 51 millj­­­­­arður króna, árið 2019 tap­aði það 7,8 millj­­­­­arðar króna og á árinu 2018 var tapið um 6,8 millj­­­­­arðar króna. Því hefur sam­­­­­stæðan tapað yfir 79 millj­­­­­örðum króna á síð­­­­­­­­­ustu fjórum árum.

Í skýrslu til­nefn­inga­nefndar Icelandair Group, sem var birt í Kaup­höll Íslands fyrir skemmstu sagði að það væri við­var­andi áhætta fyrir félagið að lyk­il­­starfs­­menn hætti þar sem þeir fái ekki næg­i­­lega vel greitt fyrir störf sín, en þrír úr fram­­kvæmda­­stjóri Icelandair Group hafa hætt störfum frá síð­­asta aðal­­fundi. Í við­­tölum sem nefndin tók við stjórn­­endur og stjórn­­­ar­­menn í félag­inu kom fram að þeir teldu þörf á „sterk­­ari varð­­veislu­á­ætlun ásamt end­­ur­­skoð­uðu starfs­kjara­­fyr­ir­komu­lagi æðstu stjórn­­enda“.

Laun for­stjóra hækk­uðu um næstum 50 pró­sent

Einn lyk­il­mann­anna sem myndi fá kaupauka- og kaup­rétt­ar­greiðslur ef bónus­kerfið verður sam­þykkt á kom­andi aðal­fundi er Bogi Níls Boga­son, for­stjóri Icelandair Group.

Kjarn­inn greindi frá því í síð­asta mán­uði að ​hann hafi fengið 518 þús­und Banda­­­ríkja­dali í laun og hlunn­indi á síð­­­asta ári. Á árs­loka­­­gengi árs­ins 2021 eru það 67,5 millj­­­ónir króna eða 5,6 millj­­­ónir króna á mán­uði. Til við­­­bótar fékk Bogi Nils 119,6 þús­und Banda­­­ríkja­dali í líf­eyr­is­greiðsl­­­ur, eða 15,6 millj­­­ónir króna á ofan­­­greindu gengi. Það þýðir að laun, hlunn­indi og líf­eyr­is­greiðslur hans á síð­­­asta ári voru sam­tals 83,1 millj­­­ónir króna, eða rúm­­­lega 6,9 millj­­­ónir króna að með­­­al­tali á mán­uð­i.

­Laun Boga hækk­­­uðu umtals­vert milli ára. Hann var með 355 þús­und Banda­­­ríkja­dali í laun á árinu 2020 og fékk þá 76 þús­und Banda­­­ríkja­dali í líf­eyr­is­­­sjóðs­greiðslur frá félag­inu. Þegar þessar tölur eru umreikn­aðar í íslenskar krónur á árs­loka­­­gengi síð­­­asta árs þýða þær að laun og hlunn­indi Boga voru 46,3 millj­­­ónir króna á árinu 2020, eða tæp­­­lega 3,9 millj­­­ónir króna á mán­uði, og líf­eyr­is­­­sjóðs­greiðsl­­­urnar alls 9,9 millj­­­ónir króna. Sam­tals voru laun, hlunn­indi og líf­eyr­is­­­sjóðs­greiðslur Boga á árinu 2020 því 56,2 millj­­­ónir króna miðað við árs­loka­­­gengi 2021, eða 4,7 millj­­­ónir króna á mán­uð­i.

Laun, hlunn­indi og líf­eyr­is­­­sjóðs­greiðslur Boga hækk­­­uðu því um 48 pró­­­sent í Banda­­­ríkja­dölum talið milli ára.

Kjarn­inn sendi fyr­ir­­­spurn til Icelandair Group vegna máls­ins og óskaði eftir útskýr­ingum á launa­hækkun for­­­stjóra. Í svari upp­­­lýs­inga­­­full­­­trúa félags­­­ins sagði að breyt­ing­una megi „lang­­­mestu leyti rekja til þess að á árinu 2020 tók for­­­stjóri á sig 30 pró­­­sent launa­­­lækkun stærstan hluta árs­ins. Þess má geta í þessu sam­hengi að árs­­­reikn­ingur félags­­­ins er í USD en öll laun á Íslandi, þ.m.t. for­­­stjóra eru greidd í íslenskum krón­­­um. Með­­­al­­­gengi íslensku krón­unnar gagn­vart USD styrkt­ist á milli ára og ýkir það hækk­­­un­ina í árs­­­reikn­ingn­­­um.“

Gengi íslensku krón­unnar gagn­vart Banda­­­ríkja­­­dal veikt­ist um 2,5 pró­­­sent á síð­­­asta ári.

Tvær hluta­fjár­aukn­ingar í far­aldr­inum

Icelandair Group fór tví­vegis í hluta­fjár­aukn­ingu eftir að kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á. Félagið safn­aði alls 23 millj­­örðum króna í útboði sem fór fram í sept­­em­ber 2020, en það hefur átt í miklum rekstr­­ar­­vanda um ára­bil sem jókst veru­­lega þegar kór­ón­u­veiru­far­ald­­ur­inn reið yfir.

[links]Icelandair Group gerði svo bind­andi sam­komu­lag við banda­ríska fjár­­­fest­ing­­ar­­sjóð­inn Bain Capital um að hann keypti nýtt hlutafé í flug­­­fé­lag­inu í fyrra­sum­ar. Sam­­kvæmt sam­komu­lag­inu greiddi Bain Capital 8,1 millj­­arð króna og eign­að­ist fyrir vikið 16,6 pró­­sent hlut í Icelandair Group. Bain Capital átti 15,7 pró­sent hlut í Icelandair Group um síð­ustu ára­mót og var lang stærsti eig­andi félags­ins. Aðrir stórir eig­endur eru íslenskir líf­eyr­is­sjóðir.

Þrátt fyrir mik­inn tap­rekstur hefur hluta­bréfa­verð í Icelandair Group rúm­lega tvö­fald­ast frá því að hluta­bréfa­út­boðið í sept­em­ber 2020 fór fram. Hlut­hafar í árs­lok voru 15.287 og fjölg­aði um 1.779 í fyrra.

Ekkert eitt fyr­ir­tæki fékk meiri fyr­ir­greiðslu úr rík­is­sjóði vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins en Icelandair Group. Á meðal þess sem félagið fékk var rík­is­á­byrgð á lána­línu upp á 16,5 millj­arða króna. Icelandair Group sagði upp lána­lín­unni á sama tíma og hug­myndir um hið nýja hvata­kerfi voru gerðar opin­berar.

Þá hefur Icelandair Group end­ur­samið, af mik­illi hörku, við helstu stétt­ar­fé­lög starfs­manna sinna. Sagði meðal ann­ars 95 pró­sent flug­freyja upp á meðan að á kjara­við­ræðum við þær stóð. Eftir að þær kol­felldu kjara­samn­ing var talað um að ráða fólk úr öðru stétt­ar­fé­lagi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár