Fimm mikilvæg atriði um húsnæðismarkaðinn

Fjöl­margar eignir vantar á hús­næð­is­markað til jafn­vægi sé á honum miðað eft­ir­spurn.

Í gær var kynnt skýrsla Capacent um íbúða­mark­að­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, en Reykja­vík­ur­borg stóð fyrir kynn­ingu á stöðu íbúða­upp­bygg­ingar í borg­inni á sér­stökum fundi um málið í gær. Fullt var út úr dyrum og aug­ljóst að mik­ill áhugi er á upp­bygg­ing­ar­á­formum og stöðu mála á mark­aðnum.

Kjarninn tók saman fimm mik­il­væg atriði um upp­bygg­ing­una á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

1. Upp­söfnuð þörf fyrir eignir, einkum litlar og með­al­stórar, er umtals­verð. Þessi staða veldur þrýst­ingi á fast­eigna­verðið upp á við þar sem eft­ir­spurnin er tölu­vert meiri en fram­boðið. Í máli Snædísar Helga­dóttur, ráð­gjafa hjá Capacent, kom fram að upp­söfnuð þörf á mark­aðnum væri nú 5.100 íbúðir. Í Reykja­vík er þörfin metin um 3.000 til 3.300 íbúðir.

2. Samtök iðn­að­ar­ins hafa áætlað að nátt­úru­leg þörf fyrir íbúðir sé á bil­inu 1.500 til 1.800 íbúðir á ári, til þess að halda í við fólks­fjölgun og þróun á fast­eigna­mark­aði. Eftir hrunið var lítið byggt, og því hefur orðið til nokk­urt ójafn­vægi milli fram­boðs og eft­ir­spurnar.

3. Verð­hækkun á eignum hefur verið hröð og mikil á und­an­förnum árum. Á und­an­förnu ári hafa eignir hækkað um 12 pró­sent að raun­virði, en hækk­unin hefur verið mest mið­svæðis í Reykja­vík. Spár gera ráð fyrir að fast­eigna­verð muni halda áfram að hækka á næstu árum, eða um 20 pró­sent til við­bótar fram til árs­ins 2018. Mikil kaup­mátt­ar­hækkun, meðal ann­ars vegna launa­hækk­ana og lágrar verð­bólgu, en hún mælist nú 1,8 pró­sent en verð­bólgu­mark­mið Seðla­banka Íslands er 2,5 pró­sent.

4. Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri í Reykja­vík, gerði stöðu hús­næð­is­mála að umtals­efni í viku­legu frétta­bréfi sínu, og segir að mesta upp­bygg­ing­ar­tíma­bil í sög­unnar borgar sé nú hafið. „Nú þegar er komið bygg­ing­ar­leyfi fyrir 2000 íbúðir og sam­þykkt hefur verið deiliskipu­lag fyrir 3500 íbúðir, að auki. Um leið eru 4000 íbúðir til við­bótar eru á svæðum sem eru í deiliskipu­lags­ferli. Framundan eru því metár í upp­bygg­ingu íbúð­ar­hús­næðis í Reykja­vík,“ segir Dagur í frétta­bréfi sínu.

5. Vöxtur í ferða­þjón­ustinni hefur haft mikil áhrif á fast­eigna­mark­að­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, sér­stak­lega mið­svæðis í Reykja­vík. Þetta er meðal ann­ars gert að umtals­efni í nýj­ustu fjár­mála­stöð­ug­leika­skýrslu Seðla­banka Íslands. Á vef Airbnb, þar sem íbúðir og her­bergi eru til leigu fyrir erlenda ferða­menn, eru um þrjú þús­und íbúðir til leigu, lang­flestar mið­svæðis í Reykja­vík. Þetta hefur leitt til þess að fram­boð eigna til var­an­legrar búsetu, ýmist til kaups eða leigu, er minna. Það svo ýtir undir hækkun fast­eigna­verðs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár