Laun hækka og kaupmáttur eykst

Laun hafa hækkað um fimm pró­sent á síð­ustu 12 mán­uðum.

Kaupmáttur jókst og laun hækkuðu í mars miðað við febrúar.
Kaup­máttur jókst og laun hækk­uðu í mars miðað við febr­úar. Mynd: samsett

Launa­vísi­tala hækk­aði í mars um 0,4 pró­sent frá því í febr­úar að því er fram kemur í nýupp­færðum upp­lýs­ingum Hag­stof­unnar sem birtar voru í dag. Kaup­máttur launa hækk­aði einnig á milli mán­aða, um 0,3 pró­sent frá því í febr­úar.

Umreiknuð árs­hækkun launa­vísi­töl­unnar í mars var fimm pró­sent og hefur ekki verið lægri síðan í apríl árið 2014 þegar hún var 4,8 pró­sent. Tólf mán­aða launa­hækkun hefur mest verið 13,4 pró­sent í apríl í fyrra en síðan hefur hallað undan fæti og nú hækka laun þess vegna hægar en þau hafa gert síðan árið 2014.

[adspot]

Sé þróun vísi­taln­anna skoðuð frá alda­mótum sést að kaup­mátt­ar­vísi­talan hefur aldrei verið hærri, miðað við við­mið­un­ar­árið 1989. Síðan árið 2010 hefur kaup­máttur launa hækkað stöðugt ár frá ári og náði nýjum hæðum árið 2016.

Ársmeðaltal kaupmáttar launa 2001-2016

Þróun launa­vísi­töl­unnar hefur nær ein­göngu verið upp­á­við miðað við við­mið­un­ar­árið 1989. Ekki má greina jafn glögg­lega áhrif efna­hags­hruns­ins 2008 í línu­rit­inu hér að neðan eins og í vísi­tölu kaup­mátt­ar­ins.

Vísitala launa janúar 2000-mars 2017

Launa­vísi­talan byggir á gögnum úr launa­rann­sókn Hag­stof­unnar og sýnir breyt­ingar á verði vinnu­stundar fyrir fasta sam­setn­ingu vinnu­tíma. Vísi­talan mælir þess vegna laun sem greidd eru fyrir umsam­inn vinnu­tíma en ekki til­fallandi yfir­vinnu eða óreglu­legar greiðslur.

Hag­stofan byggir vísi­tölu kaup­máttar á launa­vísi­tölu og vísi­tölu neyslu­verðs. „Almennt eykst kaup­máttur launa þegar laun hækka umfram verð­lag en minnkar þegar verð­bólga er meiri en launa­hækk­anir. Hafa þarf í huga að kaup­máttur launa er annar en kaup­máttur ráð­stöf­un­ar­tekna,“ segir á vef Hag­stof­unnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár