Telja athæfi Össurar ósiðlegt og að það ætti að vera ólöglegt

Mið­stjórn ASÍ telur ákvörðun Össurar ehf. að nýta sér hluta­bóta­leið stjórn­valda örskömmu eftir að fyr­ir­tækið hafi greitt eig­endum sínum 1,2 millj­arða króna í arð ósið­lega.

Drífa Snædal, forseti ASÍ.
Drífa Snædal, for­seti ASÍ. Mynd: Bára Huld Beck

Mið­stjórn Alþýðu­sam­bands Íslands (ASÍ) áréttar að opin­ber stuðn­ingur til fyr­ir­tækja vegna áhrifa COVID-19 eigi „ekki að vera til þess gerður að fyr­ir­tæki sem ekki þurfa á honum að halda vaði í sam­eig­in­lega sjóði sam­fé­lags­ins að vild“.

Þetta kemur fram í ályktun mið­stjórnar ASÍ um skil­yrði fyrir opin­berum stuðn­ingi við fyr­ir­tæki.

„Fram hefur komið að Össur ehf. hafi ákveðið að nýta sér hluta­bóta­leið­ina örskömmu eftir að fyr­ir­tækið greiddi eig­endum sínum 1,2 millj­arða króna í arð. Slíkt athæfi er ósið­legt og ætti með réttu að vera ólög­legt,“ segir í álykt­un­inni.

Enn fremur kemur fram að ASÍ hafi ítrekað kallað eftir því að stjórn­völd setji skýr skil­yrði við opin­berum stuðn­ingi – slíkar kröfur séu í sam­ræmi við ráð­legg­ingar Alþjóða­vinnu­mál­stofn­un­ar­innar, Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins og OECD.

„Meðal skil­yrða sem ASÍ hefur kallað eftir er að fyr­ir­tæki hafi nýtt sér eigin bjargir, þau und­ir­gang­ist skil­yrði um að greiða ekki út arð til tveggja ára eftir að þau njóta fyr­ir­greiðslu og að fyr­ir­tækin eða eig­endur þeirra séu ekki skráð í skatta­skjólum. Stjórn­völd hafa brugð­ist þeirri skyldu sinni að tryggja hags­muni almenn­ings og kom­andi kyn­slóða. Nú er mál að linni,“ segir að lokum í álykt­un­inni.

Styður verkfall Eflingar

Mið­stjórnin lýsir enn fremur yfir fullum stuðn­ingi við verk­fall Eflingar sem nú er hafið í Kópavogi, Sel­tjarn­ar­nesi, Mos­fellsbæ, Hvera­gerði og sveit­ar­fé­lag­inu Ölfus.

„Samn­ingar Efl­ing­ar­fé­laga eru lyk­il­þáttur í að bæta kjör þeirra sem lægst hafa launin í íslensku sam­fé­lagi. Samn­ingar í fyrr­nefndum sveit­ar­fé­lögum hafa verið lausir í rúmt ár og við­ræður hafa engum árangri skilað. Samband íslenskra sveit­ar­fé­laga hefur neitað að gera kjara­samn­ing við Eflingu sam­bæri­legan þeim sem Ríkið, Reykja­vík­ur­borg og Faxa­flóa­hafnir hafa þegar gert. Boðun verk­falls var sam­þykkt með 90 pró­sent atkvæða þeirra sem tóku þátt í atkvæða­greiðslu,“ segir í til­kynn­ingu ASÍ.

Mið­stjórn ASÍ hvetur félags­menn allra aðild­ar­sam­taka sinna og annað launa­fólk til að virða aðgerðir Eflingar og stuðla að því að verk­falls­brot verði ekki framin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár