Staðan „aldrei verið betri“ – Fimm efnahagspunktar

Óhætt er að segja að staða efna­hags­mála á Íslandi sé góð þessi miss­erin. Seðla­banka­stjóri seg­ist ekki muna eftir að staðan hafi verið jafn góð og nú.

Óhætt er að segja að efna­hags­leg staða Íslands hafi breyst mikið á und­an­förnum árum, og þá til hins betra. Mörg ein­kenni þenslu sjást greini­lega þessi miss­erin, en á sama tíma hefur skulda­staða hins opin­bera og heim­il­anna batnað veru­lega.

Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands ákvað í morgun að lækka meg­in­vexti úr 4,75 pró­sent í 4,5 pró­sent. Spár grein­enda höfðu gert ráð fyrir að vextir myndu ann­að­hvort lækka eða standa í stað. Í yfir­lýs­ingu nefnd­ar­innar segir að útlit sé fyrir áfram­hald­andi kröft­ugan hag­vöxt. „Skýr merki um spennu í þjóð­ar­bú­skapnum kalla á pen­inga­legt aðhald svo að tryggja megi verð­stöð­ug­leika til með­al­langs tíma. Hækkun raun­vaxta bank­ans frá síð­asta fundi pen­inga­stefnu­nefndar felur hins vegar í sér nokkru meira aðhald en nefndin hafði stefnt að og telur nægi­legt til þess að stuðla að verð­stöð­ug­leika,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

En hvaða þættir eru mest ein­kenn­andi fyrir þjóð­ar­bú­skap­inn þessi miss­erin, og hvernig stendur Ísland í alþjóð­legu sam­hengi?

Sam­an­tekið í fimm þætti:

1. Skulda­staða íslenska rík­is­ins hefur batnað hratt und­an­farin miss­eri. Eins og greint var frá á vef Kjarnans í dag, þá nema heild­ar­skuldir rík­is­ins 69,5% af áætl­aðri lands­fram­leiðslu á fyrsta árs­fjórð­ungi 2017. Hlut­fallið er það lægsta frá hruni, en það hefur stöðugt lækkað frá fjórða árs­fjórð­ungi 2014. Samkvæmt fjár­mála­á­ætlun stjórn­valda fyrir árin 2018 til 2022 er gert ráð fyrir að skuld­irnir muni lækka enn meira og verði komnar undir 60 pró­sent hlut­fall á næsta ári.

2. Verð­bólga hefur hald­ist undir 2,5 pró­sent mark­miði Seðla­bank­ans í meira en 40 mán­uði í röð og mælist nú 1,7 pró­sent. Ytri verð­bólgu skil­yrði hafa verið hag­felld Íslandi, þar sem olíu­verð hefur hald­ist lágt og þá hefur mikil styrk­ing krón­unnar ýtt inn­fluttum verð­bólgu­þrýst­ingi niður. Það sem heldur lífi í verð­bólg­unni, ef svo má segja, eru miklar hækk­anir fast­eigna­verðs, en hvergi í heim­inum hefur hús­næð­is­verð hækkað eins mikið og á Íslandi und­an­farin miss­eri. Hækkunin und­an­farna tólf mán­uði, á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, nemur um 20 pró­sent, og gera flestar spár ráð fyrir áfram­hald­andi hækk­unum, þó lík­legt sé að eitt­hvað róist á mark­aðnum. Framboð af eignum er tak­markað og hefur það leitt til mik­illar spennu á mark­aðnum, þar sem eft­ir­spurn er mikil.

3. Að und­an­förnu hafa sést merki um að fram­boðs­skortur á íbúðum sé far­inn að stuðla að því að við­skipti eru færri nú með íbúðir, en þau hafa verið und­an­farin ár. Í hag­sjá Lands­bank­ans segir að sam­felld aukn­ing hafi verið á árunum 2009 til 2016, en á þessu ári sést að velta í fast­eigna­við­skiptum er að minnka. Haldi kaup­mátt­ar­aukn­ingin áfram, þá gæti spenna á mark­aðnum auk­ist enn og ljóst að upp­bygg­ingin á frek­ari eignum er að í kappi við tím­ann, svo að ójafn­vægi skapi ekki meiri vanda.

4. Í fyrra var afgangur af vöru- og þjón­ustu­við­skiptum 155 millj­arðar króna, en útlit er fyrir að hann verði jafn­vel enn meiri á þessu ári, eða um 160 millj­arðar króna. Það sem mestu skiptir í þessu sam­hengi er hinn mikli vöxtur sem verið hefur í ferða­þjón­ustu, en spár gera ráð fyrir að erlendum ferða­mönnum muni fjölga um 500 þús­und á þessu ári. Í fyrra voru þeir 1,8 millj­ónir en í ár verða þeir 2,3 millj­ónir.

5. Már Guð­munds­son, seðla­banka­stjóri, sagði eftir vaxta­á­kvörð­un­ina í morgun að lík­lega hefði staða efn­hags­mála aldrei verið betri í Íslands­sög­unni. Nefndi hann þar nokkur atriði. Skuldir við útlönd eru minni eignir þar, atvinnu­leysi er lítið sem ekk­ert (3 pró­sent), eigið fé í banka­kerf­inu væri mikið og traust, gjald­eyr­is­forð­inn stór, mik­ill afgangur á við­skiptum við útlödn, lífs­kjör væru að batna hratt og skulda­staða hins opin­bera hefði styrkst. „Ég man ekki eftir að þetta hafi verið svona,“ sagði Már. Síðan sagði hann að í alþjóð­legu sam­hengi væri staða Íslands góð, þar sem helstu við­fangs­efnin væru þau að glíma við mikla spennu, frekar en að örva hag­vöxt með stuðn­ings­að­gerðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár